Sýnataka
Frá föstudeginum 1. apríl mun Heilbrigðisstofnun Vestfjarða eingöngu bjóða upp á PCR-sýnatökur.
Ísafjörður: Miðvikudaga kl. 13 í gámnum fyrir utan sjúkrahúsið [uppf. 8. júlí 2022]
Patreksfjörður: Miðvikudaga kl. 11:30 í gámnum fyrir framan sjúkrahúsið. [uppf. 8. júlí 2022]
Einkennasýnatökur: Þeir sem eru með einkenni sem benda til þess að viðkomandi sé með Covid-19 geta bókað sýnatöku á mínum síðum á vefnum Heilsuvera. Hægt er að leita sér aðstoðar við að bóka einkennasýnatöku á netspjalli Heilsuveru. Ekki þarf að greiða fyrir þessa þjónustu.
Ferðalög: Þeir sem þurfa að fara í PCR-sýnatöku vegna ferðalaga geta bókað sýnatökuna á vefnum travel.covid.is. Sýnatakan og vottorðið kosta 7.000 krónur. Þeir sem þurfa að fara í hraðpróf vegna ferðalaga geta bókað sýnatöku á hradprof.is eða testcovid.is. Ferðalangar eru hvattir til að huga tímanlega að prófum fyrir brottför og sækja þessa þjónustu í Reykjavík.
Nánari upplýsingar eru að finna á covid.is.
Heimsóknatakmarkanir og grímunotkun
Uppfært 1. apríl
Ekki koma í heimsókn eða inn á stofnunina ef eitthvað af þessu gildir:
- Þú ert smituð/aður af Covid-19 skv. heimaprófi, hraðprófi eða PCR-prófi.
- Minna en 5 dagar eru síðan þú varst með einkenni af Covid-19.
- Þú ert með einkenni sem minnsti grunur er um að geti verið Covid-19, svo sem hósti, hálssærindi, mæði, niðurgangur, uppköst, hiti, höfuðverkur, kviðverkir, beinverkir eða þreyta.
Grímuskylda er fyrir alla skjólstæðinga sem koma inn á stofnunina og starfsmenn meðan þeir sinna sjúklingum í mikilli nánd.
Sjúkradeild á Ísafirði
Fólk með flensulík einkenni eða staðfest smit má ekki koma í heimsókn.
Hjúkrunarheimili
Mælst er til þess að heimsóknargestir séu eingöngu í heimsókn inni á herbergjum ástvina sinna.
Heilsugæsla og önnur þjónusta
Grímuskylda er í heilsugæslu og annarsstaðar þar sem ekki er hægt að viðhafa eins meters fjarlægð.
Frekari upplýsingar
Vefspjallið niðri í hægra horninu á Covid.is er með svörin á reiðum höndum við almennum spurningum.
Hringdu í okkur í 450 4500, sendu tölvupóst eða hafðu samband við okkur á Heilsuveru til að fá upplýsingar um bólusetningu miðað við þínar forsendur.
Fréttir og tilkynningar sem tengjast Covid-19
- Bólusetning gegn inflúensu og covid-19Á næstu vikum hefjast bólusetningar gegn inflúensu og covid-19. Sóttvarnalæknir mælist til þess að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs: Bólusetning fyrir forgangshópa er ókeypis. Bólusetning fyrir þá sem ekki tilheyra þessum […]
- Bólusetningar fyrir Covid og InflúensuÍsafjörður:Minnum á að hægt er að fá bólusetningu gegn Influensu alla virka daga milli 11 og 12.Miðvikudaginn 22. febrúar verður bólusetning samtímis fyrir Covid og Influensu. ForgangshóparEftirfarandi forgangshópar gilda fyrir […]
- Bólusetningar fyrir COVID og InfluensuÍsafjörður:Minnum á að hægt er að fá bólusetningu gegn Influensu alla virka daga milli 11 og 12.Miðvikudaginn 11. janúar verður bólusetning samtímis fyrir Covid og Influensu fyrir forgangshópa. ForgangshóparEftirfarandi forgangshópar […]
- Engar covid-tengdar takmarkanir lengurEkki eru lengur í gildi neinar covid-tengdar takmarkanir á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Áfram gildir sú ágæta regla að koma ekki í heimsókn á sjúkradeild á Ísafirði með kvef eða veikindi. Grímur […]
- Bólusetningar fyrir Covid og influensuBólusetningar fyrir COVID og InfluensuMinnum á að hægt er að fá bólusetningu gegn Influensu alla virka daga milli 11 og 12. Miðvikudaginn 14. desember verður bólusetning samtímis fyrir Covid og […]
- Bólusetning fyrir inflúensu á sunnanverðum VestfjörðumBólusetning fyrir inflúensu hjá forgangshópum er hafin á sunnanverðum Vestfjörðum. Bólusett er alla daga kl. 11:00 en bóka þarf tíma fyrirfram í síma 450 2000. Sóttvarnalæknir hefur nú heimilað að […]
Uppfært 5. desember 2022 (HEP)