Hjúkrunarheimilið Berg
Hjúkrunarheimilið Berg var opnað 6. desember 2015 í hinu svokallaða Hvíta húsi. Á efri hæðum eru íbúðir fyrir eldra fólk og safnaðarheimili. Í kjallara er endurhæfingarþjónusta.
Tíu rými eru á Bergi. Umsóknir um pláss fara í gegnum Færni- og heilsumatsnefnd Vestfjarða. Deildarstjóri er Auður Helga Ólafsdóttir, audur@hvest.is, sem einnig er deildarstjóri á Eyri, en aðstoðardeildarstjóri er Svala Einarsdóttir, svalabe@gmail.com.
Hægt er að fá samband við Hjúkrunarheimilið Berg í síma 450 4595.

Heilsugæslusel
Heilsugæslusel er að Höfðastíg 15.
Viðræður hafa staðið um talsvert skeið um færslu á selinu í heppilegra húsnæði og unnið er að lausn á málinu í samstarfi við Bolungarvíkurkaupstað.
Selið er opið á mánudögum frá kl. 13:00–15:00 og fimmtudögum 09:00–12:00.
Heimahjúkrun
Heimahjúkrun er sinnt í Bolungarvík frá heimahjúkrunardeildinni á Ísafirði.
Uppfært 26. apríl 2022 (MÞ)