Ísafjörður

Endurhæfingu, sjúkraþjálfun og iðjuþjálfunarþjónusta er sinnt í kjallara sjúkrahússins að Torfnesi. Deildarstjóri er Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir.

Hægt er að hafa samband við endurhæfingardeild í síma 450 4558.

Bolungarvík

Kristrún Hermannsdóttir sjúkraþjálfari starfar í hlutastarfi hjá heilbrigðisstofnuninni og sinnir íbúum á Bergi. Helgi Pálsson sjúkraþjálfari sinnir sjálfstæðri göngudeildarþjónustu í Bolungarvík undir merkinu Heilsuefling. Frekari upplýsingar er að finna á Facebook-síðu Heilsueflingar.

Patreksfjörður

Á Patreksfirði starfa tveir sjúkraþjálfarar í hlutastarfi. Margrét Brynjólfsdóttir sjúkraþjálfari sérfræðingur í öldrunarsjúkraþjálfun starfar á hjúkrunardeild og heilsugæslu. Hægt er að ná í hana í síma 4502018.

Þóra Kristín Bergsdóttir sjúkraþjálfari sinnir sjálfstæðri göngudeildarþjónustu eina til tvær helgar í mánuði. Hægt er að panta tíma í gegnum netfangið tora.k.bergsdottir@hvest.is. Gjald fer eftir gjaldskrá SÍ að hverju sinni auk komugjalds.

Uppfært 3. júlí 2024 (HEP)

Var síðan gagnleg?