Sjúkraflutningar

Sjúkraflutningar í umdæminu eru tvískiptir:

  • Slökkvilið Ísafjarðarbæjar sér um sjúkraflutninga í Ísafjarðarbæ, Bolungarvík og Súðavíkurhreppi, samkvæmt samningi milli Ísafjarðarbæjar og ­Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Starfssvæðið nær frá miðri Óshlíð, inn í botn Ísafjarðar í Ísafjarðardjúpi og síðan allt vestur á Dynjandisheiði.
  • Heilbrigðisstofnunin sinnir sjúkraflutningum í Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppi. Tveir sjúkraflutningamenn eru á bakvakt á hverjum tíma til að sinna þessu verkefni.

Rauði kross Íslands sendir reikninga fyrir sjúkraflutningum, skv. verðskrá.

Sjúkraflugvélar lenda á Ísafirði og Bíludal, auk þess sem þyrlur og skip Landhelgisgæslunnar, auk björgunarsveita hjálpa til þegar aðstæður krefjast.

Sjúkrabíll Slökkviðiliðsins á Ísafirði með Álftafjörð í baksýn.
Sjúkraflutningamenn á suðursvæðinu árið 2021.

Heyrnar- og talmeinastöð Íslands

Heyrnarfræðingur frá Heyrnar- og talmeinastöð Íslands, Indíana Einarsdóttir, er með starfsaðstöðu á Ísafirði og Patreksfirði.

Gerðar eru nýburamælingar og mælingar og önnur þjónusta fyrir börn frá 4 ára aldri og fullorðna. Ekki þarf að fá tilvísun frá lækni. Mælingar og aðstoð eru gjaldfrjáls.

Tímabókanir fara í gegnum Heyrnar- og talmeinastöðina.


Prestar

Prestar Þjóðkirkjunnar eru reglulegir gestir á stofnuninni.

Prestsþjónusta við stofnunina er þríþætt:

Í fyrsta lagi er vikuleg heimsóknarþjónusta, sem felst í því að á hverjum mánudegi kemur prestur og heimsækir inniliggjandi sjúklinga. Klukkan 15:30 er hann svo við helgistund í kapellunni, en starfsfólk sjúkradeildar og Eyrar aðstoðar íbúa og sjúklinga við að komast niður í kjallarann þar sem kapellan er staðsett. Ennfremur geta sjúklingar eða aðstandendur þeirra óskað eftir að prestur líti til þeirra í heimsókn til samtals og stuðnings. Prestarnir í Ísafjarðarprestakalli skiptast á að sinna sjúkrahúsinu, en skipulag þjónustunnar er í höndum sóknarprestsins á Ísafirði.

Í öðru lagi sinnir sóknarprestur neyðarþjónustu. Alltaf er einhver prestur á bakvakt gagnvart sjúkrahúsinu og hægt er að kalla hann út hvenær sem þörf er á sálgæslu eða stuðningi prests, til dæmis vegna andláts, slysa eða náttúruhamfara.

Í þriðja lagi kemur prestur og messar á jóladag á hjúkrunarheimilinu Eyri

Á starfssvæði heilbrigðisstofnunarinnar eru tvær sóknir; Ísafjarðarsókn og Patreksfjarðarsókn.

Úr kapellunni í kjallara sjúkrahússins á Ísafirði.
Úr kapellunni í kjallara sjúkrahússins á Patreksfirði.

Tannlæknir

Tannlæknir er starfandi í húsnæði heilsugæslustöðvarinnar á Ísafirði, Viðar Konráðsson.

Tímapantanir í síma: 456 3737

Í Bolungarvík er tannlæknastofan og tannsmiðjan, Vesturbros ehf og þar starfa tveir tannlæknar, Katrín Ugla Kristjánsdóttir og Margrét Theodórsdóttir. Þar starfar einnig Rebekka Líf Karlsdóttir, tannsmiður.

Tímapantanir í síma: 4567077

Neyðarþjónustusímanúmer:
Viðar Konráðsson: 893 4511

Stofa er laus til leigu á heilsugæslustöðinni á Patreksfirði. Nánari upplýsingar veitir forstjóri.

Uppfært 3. júlí 2024 (HEP)

Var síðan gagnleg?