Tímapantanir
Panta má tíma vegna heilbrigðisþjónustu hjá móttökuriturum á Ísafirði í síma 450 4500 og á Patreksfirði í síma 450 2000. Auk þess að taka við tímapöntunum gefa móttökuritarar almennar upplýsingar um starfsemi stöðvanna og koma áríðandi skilaboðum til starfsfólks.

Nauðsynlegt er að láta móttökuritara vita þegar mætt er í pantaðan tíma. Á Ísafirði er hægt að nota móttökuskjá til að skrá sig í tíma og greiða komugjald að heimsókn lokinni.

Almennur læknatími er 20 mínútur. 

Símatímar
Læknar eru með símatíma alla virka daga. Panta skal símatíma hjá móttökuritara á heilsugæslustöð og þá hringir læknirinn til þess sem á pantaðan tíma. Þessi þjónusta er fyrst og fremst til að svara stuttorðum fyrirspurnum, veita einfaldar ráðleggingar og gefa upplýsingar um niðurstöður rannsókna.

1700 Samdægursþjónusta
Til að fá símarágjöf frá hjúkrunarfræðingi eða aðstoð frá vakthafandi lækni þarf að hringja í 1700. Þar starfar sérþjálfað starfsfólk sem leysir úr fyrirspurnum og beinir þeim áfram í réttan farveg.

Hjúkrunarfræðingar í 1700 koma þeim skjólstæðingum áfram til hjúkrunarfræðinga eða lækna Hvest sem þess þurfa.

Ef um slys og alvarleg veikindi er að ræða þar sem bráðrar þjónustu er þörf – hringið í 112!

Sjá einnig ítarlegri upplýsingar
undir Hafðu samband

Uppfært 19. janúar 2026 (AG)

Var síðan gagnleg?