Á næstu vikum hefjast bólusetningar gegn inflúensu og covid-19.

Sóttvarnalæknir mælist til þess að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs:

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdóma, sykursýki, illkynja sjúkdóma og ónæmisbælandi sjúkdóma.
  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast sjúklinga í áhættuhópum hér að ofan.                                                    
  • Þungaðar konur.

Bólusetning fyrir forgangshópa er ókeypis.

Bólusetning fyrir þá sem ekki tilheyra þessum hópum verða auglýstar síðar.

Bóluset fyrir covid-19 er óháð tegund eða fjölda fyrri skammta, en nánar má lesa um fyrirkomulagið á vef sóttvarnarlæknis.

Ísafjörður og nágrenni

Inflúensubólusetningar hefjast þann 30. október nk. og lýkur þann 30. nóvember.

Bólusetning fyrir inflúensu og covid-19 bólusetningu samtímis verða eftirfarandi daga á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði:

  • Mánudaginn 30. október kl. 10:00–11:00 og 13:00–14:00.
  • Miðvikudaginn 1. nóvember kl. 10:00–11:00 og 13:00–14:00.
  • Föstudaginn 3. nóvember kl. 10:00–11:00 og 13:00–14:00.

Bólusetning fyrir inflúensu eingöngu verður á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði:

  • Þriðjudaginn 31. október kl. 10:00–11:30 og 13:00–14:00.
  • Fimmtudaginn 2. nóvember kl. 10:00–11:30 og 13:00–14:00.                                                                                                           

Nauðsynlegt er að panta tíma í bólusetningu í síma 450-4500

Á heilsugæsluseljum verður hægt að óska eftir bólusetningu en bóka þarf fyrirfram.

Patreksfjörður og nágrenni

Bólusetningar eru hafnar

Tímapantanir alla virka daga

  • frá kl: 8:00 – 15:00
  • í síma: 450-2000

Hægt verður að velja um að fá annað hvort eða bæði bóluefnin í sömu heimsókn, mikilvægt er að taka það fram í tímapöntun.