Fjórða sprauta fyrir þau elstu og fólk með áhættuþætti

Landlæknir hvetur alla 80 ára og eldri og þá sem hafa undirliggjandi áhættuþætti að þiggja fjórðu sprautu af bólusetningu gegn Covid-19. Fjórðu sprautu má gefa fjórum mánuðum eftir þriðju sprautu en mælt er með að bíða í a.m.k. þrjá mánuði eftir Covid-19 sýkingu með að fara í bólusetningu.

Ekki skiptir máli af hvaða gerð fyrri sprautur voru.

Vel hefur verið mætt á Vestfjörðum í fjórðu bólusetningu og hafa um 82% Vestfirðinga 80 ára og eldri þegið fjórðu sprautu.

Bólusetjum 22. júní

Stefnt er að bólusetningu fullorðinna fyrir Covid-19 miðvikudaginn 22. júní. Við viljum biðja alla sem hafa áhuga á að fá sprautu, hvort sem það er 1. ,2., 3. eða 4. sprauta að senda póst á bolusetning@hvest.is eða hringja í 450 4500 og láta skrá sig.

Bólusetning barna 5–11 ára: 29. júní

Stefnt er að bólusetningu barna fyrir Covid-19 miðvikudaginn 29. júní. Við viljum biðja forráðamenn sem hafa áhuga á að láta bólusetja börnin sín að senda póst á bolusetning@hvest.is. Mælt er með að bíða í þrjá mánuði með bólusetningu eftir Covid-19 sýkingu.

Sunnanverðir Vestfirðir

Íbúar á sunnanverðu svæðinu (Vesturbyggð og Tálknafirði) hafi samband við okkur í bolusetning@hvest.is.

Önnur bólusetning fyrir Covid-19. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, Ísafirði.