Lýðheilsufélag læknanema og Heilbrigðisstofnun Vestfjarða opnaði bangsaspítala í fyrsta skipti laugardaginn 26. nóvember! Hellingur af börnum kom með veika eða slasaða bangsa sem þurftu aðhlynningu. Vandamálin voru fjölbreytt; einn var með harðsperrur í tánum og annar missti beinin úr hálsinum svo dæmi séu tekin. Reynt var að lækna sem mest af vandamálunum með spelkum, sárabindum, plástrum, kossum og leiðbeiningum um hreyfingu og góða hvíld.

Tilgangurinn með bangsaspítalanum er tvíþættur: Annars vegar að fyr­ir­byggja hræðslu hjá börn­um við lækna og heil­brigðis­starfs­fólk og hins veg­ar að gefa lækna­nem­um tæki­færi til að æfa sam­skipti við börn.

Við viljum enda á að þakka stuðningsaðilum kærlega fyrir, heilbrigðisstarfsfólkinu sem tók þátt og öllum börnunum sem komu.