Með hækkandi sól fer að bera á vorboðum og nú erum við hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða að auglýsa eftir sumarstarfsfólki.
Okkur vantar sumarafleysingu í hin ýmsu störf á öllum fjórum starfsstöðvum. Við erum að auglýsa eftir fólki til að starfa við aðhlynningu á öllum starfsstöðvum, hjúkrunarfræðingum bæði á Ísafirði og Patreksfirði, ljósmóður, sjúkraliðum á allar starfsstöðvar, ræstitæknum á Ísafirði, rekstrarstjóra á Patreksfirði og móttökuriturum á Ísafirði og Patreksfirði. Einhverjar auglýsingar eiga svo eftir að bætast við þannig að það er um að gera að fylgjast með undir laus störf hérna á heimasíðunni.
Menntaskóla- og háskólanemar velkomnir
Nemendur af efri skólastigum eru velkomnir. Heilbrigðiskerfið er fjölbreytt og spennandi, og þá er ómetanlegt að fá starfsreynslu til að kynnast hinum ýmsu störfum og geta þannig tekið betri ákvarðanir um náms- og starfsval.
Háskólanemar, bæði í heilbrigðisgreinum en einnig hverju sem er, koma margir ár eftir ár.
Einnig laus ótímabundin störf
Undir laus störf er einnig auglýst eftir sálfræðingi, hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum í framtíðarstörf.
Auk þess er það oft svo að fólk sem kemur í afleysingar ílengist og verður framtíðarstarfólk.
Bendum á að það er hægt að vera á skrá og senda inn almenna umsókn en það er gert á sama stað eða undir laus störf.
Laus störf
-
Sjúkraliði óskast í ýmis störf á rannsóknardeild
Starfseining: Rannsókn, 400 Ísafjörður Umsóknarfrestur: frá 11.12.2024 til 23.12.2024. Starfshlutfall: -50%
-
Deildarstjóri framkvæmda og rekstrar á HVest Patreksfirði
Starfseining: Heilsugæsla Suðursv., 450 Patreksfjörður Umsóknarfrestur: frá 11.12.2024 til 06.01.2025. Starfshlutfall: 100%
-
Geislafræðingur óskast í afleysingar á Ísafirði
Starfseining: Röntgen, 400 Ísafjörður Umsóknarfrestur: frá 04.12.2024 til 16.12.2024. Starfshlutfall: 70-100%
-
Viltu vera á skrá? Almenn störf hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Starfseining: Skrifstofa, 400 Ísafjörður Umsóknarfrestur: frá 08.12.2021 til 02.06.2025. Starfshlutfall: 20-100%