Covid-smit hefur verið staðfest hjá starfsmanni stofnunarinnar á Patreksfirði. Búið er að skima alla starfsmenn og alla skjólstæðinga á legudeildinni. 

Í ljósi þess að nú hefur verið staðfest smit hjá starfsmanni Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða á Patreksfirði hefur viðbragðsstjórn stofnunarinnar á suðursvæði ákveðið að setja starfsstöðina á óvissustig fram á miðvikudag. 

Þrettán starfsmenn eru komnir í sóttkví. Öll starfsemi stofnunarinnar verður því í lágmarki næstu viku. Vakthafandi læknir mun meta hvaða skjólstæðinga þarf að hitta en viðtöl sem ekki eru brýn kunna að verða felld niður. Ungbarnavernd, mæðravernd, blóðprufur og sjúkraþjálfun falla niður nema í bráðatilvikum. Búið er að manna legudeildina næstu daga með fólki sem ekki var útsett fyrir smiti. Heimsóknir eru ekki leyfðar á legudeildina þangað til annað verður ákveðið. 

Þau smit sem komið hafa upp núna tengjast fyrra hópsmiti. Formleg sóttkví er fimm dagar. Alltaf er möguleiki á að smit greinist ekki við lok sóttkvíar en taki sig upp í kjölfarið. Það er því mikilvægt að fara varlega fyrstu daga eftir að sóttkví lýkur og fara í sýnatöku við minnstu einkenni.

Uppfært 8. desember:

Óvissustig var sett á starfsstöð Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða á Patreksfirði á sunnudag vegna smits sem kom upp hjá starfsmanni sem sendi þrettán aðra starfsmenn í sóttkví. Þetta hafði talsverð áhrif á starfsemina alla en gekk þó upp með samstilltu átaki. Nú eru niðurstöður komnar úr sýnatökum í lok sóttkvíar. Öll próf reyndust neikvæð. Starfsfólk er því laust úr sóttkví, og þó farið verði að gát getur starfsemin tekið á sig eðlilegri blæ. Þetta gildir þó ekki um endurhæfingardeildina sem áfram verður lokuð. Viðbragðsstjórn stofnunarinnar á suðursvæði hefur því ákveðið að aflýsa óvissustigi.