Þessar upplýsingar eru úreltar. Gildandi upplýsingar um bólusetningar barna eru í annarri frétt.

Nú er komið að börnunum að fá bólusetningu við Covid-19. Allt verður gert til að gera bólusetninguna ánægjulega fyrir börn og aðstandendur þeirra. Gott samstarf er við skólayfirvöld við undirbúninginn.

Upplýsingar um bólusetningu má finna hér: Bólusetning barna (covid.is) á mörgum tungumálum og viðbótarefni á íslensku, ensku og pólsku hér.

Efni á íslensku, ensku og pólsku til að skoða með 5–11 ára börnum er hægt að skoða hér og ítarefni hér.

Leikskólabörn

Leikskólabörn á norðursvæðinu verða boðuð í bólusetningu seinna í janúar. Í nokkrum bæjum þar sem leikskólabörnin eru fá eða aðstæður krefja verða þau þó boðuð í þessari umferð og fá forráðamenn þeirra upplýsingar um það beint.

Ósk um bólusetningu

Forsjáraðilar sem deila lögheimili með barni og nota rafræn skilríki þurfa að taka afstöðu til bólusetningar barns hér: skraning.covid.is Hægt er að:

  • Skrá barn sitt í bólusetningu
  • Skrá aðila sem er heimilt að fylgja barninu í bólusetningu
  • Hafna/ bíða með bólusetingu

Þegar forsjáraðili hefur skráð barn sitt í bólusetningu fær hann sent strikamerki með SMS skilaboðum í númerið sem rafræn skilríki tengjast. Það er á ábyrgð forsjáraðila að senda strikamerkið áfram ef hann vill að einhver annar fylgi barninu í bólusetningu. Ef einhver mætir með barn án strikamerkis á bólusetningarstað er kennitölu barns flett upp. Þá sést hvort óskað hefur verið eftir bólusetningu og hverjir eru skráðir með leyfi til að mæta með barnið. Í þeim tilfellum er spurt um skilríki.

  1. Forsjáraðilar barna á þessum aldri sem ekki nota rafræn skilríki geta mætt sjálfir með barnið á bólusetningarstað og þurfa að hafa skilríki meðferðis.
  2. Aðilar án kennitölu geta skráð barn sitt í bólusetningu á bolusetning.covid.is (enska: vaccine.covid.is) til að flýta fyrir ferli á bólusetningarstað og mæta svo sjálfir með barni sínu þangað á auglýstum tíma.

Bólusetning bíður eða er hafnað:

  • Ef forsjáraðili hefur afþakkað bólusetningu með rafrænum skilríkjum getur annar forsjáraðili ekki breytt því. 
  • Afþökkun eftir samþykki óvirkjar útgefið strikamerki. Virkt strikamerki á bólusetningastað er þannig staðfesting á að samþykki fyrir bólusetningu liggi fyrir.
  • Til að afþakka bólusetningu án rafrænna skilríkja þarf að senda tölvupóst á skólahjúkrunarfræðing í skóla barnsins. Höfnun sem berst þessa leið innan sólarhrings fyrir áætlaða bólusetningu næst ekki með vissu að skrá áður en bólusetning fer fram. Einungis forsjáraðilar með lögheimili með barni geta afþakkað bólusetninguna.
  • Allir aðilar sem hafa skráð sig inn í kerfið fá tilkynningu um breytingar á skráningu barna í þeirra forsjá.

Útkljá þarf ósætti milli forsjáraðila á öðrum vettvangi, bólusetning verður áfram í boði ef forsjáraðilar sammælast um að hún verði gerð.

Algengar spurningar

Hvað með börn sem hafa fengið COVID-19? 
Þau eiga að bíða með bólusetningu í 3 mánuði eftir sýkingu.

Hvað með börn sem eru lasin á bólusetningardegi?

Þau ættu að bíða með bólusetningu þar til þau hafa jafnað sig af veikindunum. Ef þau reynast vera með COVID-19 er rétt að bíða með bólusetningu í a.m.k. 3 mánuði eftir smitið.

Hvað með börn sem hafa fengið bráðaofnæmi fyrir öðrum bóluefnum eða stungulyfjum?

Þau ættu ekki að fá bólusetningu gegn COVID-19 nema í samráði við sérfræðing í ofnæmislækningum.

Ef foreldri á fleiri en eitt barn á þessum aldri má koma með bæði/öll á sama tíma? 
Já.

Ef barn kemst ekki í bólusetningu á boðuðum tíma verður hægt að fá bólusetningu síðar?
Já, heilsugæslan á hverjum stað auglýsir fyrirkomulag.

Hver veit hvort barn er bólusett?
Valdir starfsmenn í heilsugæslu hafa aðgang að bólusetningakerfinu. Þeir eru allir bundnir af þagnarskyldu. Starfsfólk skóla fær ekki upplýsingar frá heilsugæslunni um hvort barn er bólusett eða ekki.

Börn sem verða 12 ára í janúar 2022

Foreldrar barna sem verða 12 ára í janúar og vilja bólusetningu vinsamlegast hafið samband við hildurep@hvest.is fyrir frekari upplýsingar.

Grímuskylda er fyrir börn og fullorðna.

Ísafjörður, Bolungarvík, Suðureyri, Súðavík, Flateyri

Börnum í 1.–6. bekk G.Í. verður boðin bólusetning gegn covid 19 í þessari viku og fer hún fram á heilsugæslustöðinni á Ísafirði samkvæmt tímatöflu hér að neðan.

Bólusetningin sjálf fer fram á læknastofum en að sprautu lokinni þarf að bíða í 15 mínútur, og það er gert í matsalnum.

Miðvikudagur 12. janúar 2022

kl. 13:00 6. bekkur G.Í. börn fædd janúar, febrúar og mars

kl. 13:10 6. bekkur G.Í. börn fædd apríl, maí og júní

kl. 13:20 6. bekkur G.Í. börn fædd júlí, ágúst og september

kl. 13:30 6. bekkur G.Í. börn fædd október, nóvember og desember

kl. 13:40 5. bekkur G.Í. börn fædd janúar, febrúar og mars

kl. 13:50 5. bekkur G.Í. börn fædd apríl, maí og júní

kl. 14:00 5. bekkur G.Í. börn fædd júlí, ágúst og september

kl. 14:10 5. bekkur G.Í. börn fædd október, nóvember og desember

kl. 14:20 4. bekkur G.Í. börn fædd janúar, febrúar og mars

kl. 14:30 4. bekkur G.Í. börn fædd apríl, maí og júní

kl. 14:40 4. bekkur G.Í. börn fædd júlí, ágúst og september

kl. 14:50 4. bekkur G.Í. börn fædd október, nóvember og desember

kl. 15:00 3. bekkur G.Í. börn fædd janúar, febrúar, mars og apríl

kl. 15:10 3. bekkur G.Í. börn fædd maí, júní, júlí og ágúst

kl. 15:20 3. bekkur G.Í. börn fædd september, október, nóvember og desember

kl. 15:30 2. bekkur G.Í. börn fædd janúar, febrúar, mars og apríl

kl. 15:40 2. bekkur G.Í. börn fædd maí, júní, júlí og ágúst

kl. 15:50 2. bekkur G.Í. börn fædd september, október, nóvember og desember

Fimmtudagur 13. janúar 2022

(Talsverðar raskanir urðu á bólusetningum í Bolungarvík vegna sóttkvía, þessi áætlun gilti því ekki þegar upp var staðið)

kl. 13:00 1. bekkur G.Í. börn fædd janúar, febrúar og mars

kl. 13:10 1. bekkur G.Í. börn fædd apríl, maí og júní

kl. 13:20 1. bekkur G.Í. börn fædd júlí, ágúst og september

kl. 13:30 1. bekkur G.Í. börn fædd október, nóvember og desember

kl. 13:40 Grunnskóli Bolungarvíkur börn fædd jan í 1.–6. bekk

kl. 13:50 Grunnskóli Bolungarvíkur börn fædd í febrúar og mars í 1.–6. bekk

kl. 14:00 Grunnskóli Bolungarvíkur börn fædd apríl og maí 1.–6. bekk

kl. 14:10 Grunnskóli Bolungarvíkur börn fædd í júní í 1.–6. bekk

kl. 14:20 Grunnskóli Bolungarvíkur börn fædd í julí og ágúst 1.–6. bekk

kl. 14:30 Grunnskóli Bolungarvíkur börn fædd í september og október 1.–6. bekk

kl. 14:40 Grunnskóli Bolungarvíkur börn fædd í nóvember og desember í 1.–6. bekk

kl. 14:50 Grunnskólinn á Suðureyri börn fædd janúar – desember í 1.–6. bekk

kl. 15:00 Grunnskólinn á Suðureyri börn fædd júlí – desember í 1.–6. bekk

kl. 15:10 Grunnskólinn á Flateyri

kl. 15:20 Grunnskólinn í Súðavík

Leikskólabörn verða boðuð seinna í janúar.

Þingeyri

Uppfært 12. janúar: Fært til 13. janúar vegna veðurs

Bólusett verður í Grunnskólanum á Þingeyri miðvikudaginn 13. janúar kl. 13:30.

Patreksfjörður, Bíldudalur og Tálknafjörður

Bólusett verður föstudaginn 14. janúar frá kl. 10:00–12:00 og frá 13:00–15:00 á heilsugæslustöðinni. Skólahjúkrunarfræðingurinn hún Soffía hefur sent upplýsingar í tölvupósti. Það þarf bæði að skrá barnið í bólusetningu á skraning.covid.is og hringja í heilsugæslustöðina í 450 2000 til að bóka sér tíma.