Heilbrigðisstofnun Vestfjarða í samráði við Lýðheilsufélag læknanema tilkynnir með stolti að bangspítal verður opnaður í fyrsta skipti á Ísafirði laugardaginn 26. nóvember næstkomandi! Öllum börn­um ásamt for­eldr­um eða for­ráðamönn­um er boðið að koma með veika eða slasaða bangsa á heilbrigðisstofnunina.

Tilgangurinn með bangsaspítalanum er tvíþættur: Annars vegar að fyr­ir­byggja hræðslu hjá börn­um við lækna og heil­brigðis­starfs­fólk og hins veg­ar að gefa lækna­nem­um tæki­færi til að æfa sam­skipti við börn.

Heim­sókn­in fer þannig fram að hvert barn kem­ur með sinn eig­in bangsa. Gott er að ræða fyr­ir­fram við barnið um það hvernig bangs­inn sé veik­ur (hvort hann sé t.d. með háls­bólgu, magapest eða brot­inn fót). Þegar á heilsu­gæsl­una er komið fær barnið að inn­rita bangs­ann og að því loknu kem­ur bangsalækn­ir og vís­ar barn­inu inn á lækna­stofu þar sem lækn­ir­inn skoðar bangs­ann og veit­ir hon­um þá aðhlynn­ingu sem hann þarf á að halda.

Ekkert vandamál er of stórt eða of lítið fyrir bangsalæknana og hvetjum við alla til að taka daginn frá og kíkja í heimsókn.

Við viljum enda á að þakka stuðningsaðilum kærlega fyrir, því án þeirra væri þetta ekki möguleiki.