Heilbrigðisstofnun Vestfjarða í samráði við Lýðheilsufélag læknanema tilkynnir með stolti að bangspítal verður opnaður í fyrsta skipti á Ísafirði laugardaginn 26. nóvember næstkomandi! Öllum börnum ásamt foreldrum eða forráðamönnum er boðið að koma með veika eða slasaða bangsa á heilbrigðisstofnunina.
Tilgangurinn með bangsaspítalanum er tvíþættur: Annars vegar að fyrirbyggja hræðslu hjá börnum við lækna og heilbrigðisstarfsfólk og hins vegar að gefa læknanemum tækifæri til að æfa samskipti við börn.
Heimsóknin fer þannig fram að hvert barn kemur með sinn eigin bangsa. Gott er að ræða fyrirfram við barnið um það hvernig bangsinn sé veikur (hvort hann sé t.d. með hálsbólgu, magapest eða brotinn fót). Þegar á heilsugæsluna er komið fær barnið að innrita bangsann og að því loknu kemur bangsalæknir og vísar barninu inn á læknastofu þar sem læknirinn skoðar bangsann og veitir honum þá aðhlynningu sem hann þarf á að halda.
Ekkert vandamál er of stórt eða of lítið fyrir bangsalæknana og hvetjum við alla til að taka daginn frá og kíkja í heimsókn.
Við viljum enda á að þakka stuðningsaðilum kærlega fyrir, því án þeirra væri þetta ekki möguleiki.