Í þessari viku klárum við fyrstu umferð af bólusetningum barna við Covid-19. Þetta hefur gengið mjög vel, að því frátöldu að veður og sóttkvíar hafa aðeins tafið verkefnið. Því eru á dagskránni börn úr miðstigi frá Bolungarvík og öll börn fædd 2016 í öllum bæjum norðarnverðra Vestfjarða. Einnig þau börn fædd 2017 sem orðin eru fimm ára hvar sem þau búa.

Allt verður gert til að gera bólusetninguna ánægjulega fyrir börn og aðstandendur þeirra. Gott samstarf er við skólayfirvöld við undirbúninginn.

Upplýsingar um bólusetningu má finna hér: Bólusetning barna (covid.is) á mörgum tungumálum og viðbótarefni á íslensku, ensku og pólsku hér.

Efni á íslensku, ensku og pólsku til að skoða með 5–11 ára börnum er hægt að skoða hér og ítarefni hér.

Ósk um bólusetningu

Forsjáraðilar sem deila lögheimili með barni og nota rafræn skilríki þurfa að taka afstöðu til bólusetningar barns hér: skraning.covid.is Hægt er að:

  • Skrá barn sitt í bólusetningu
  • Skrá aðila sem er heimilt að fylgja barninu í bólusetningu
  • Hafna/ bíða með bólusetingu

Þegar forsjáraðili hefur skráð barn sitt í bólusetningu fær hann sent strikamerki með SMS skilaboðum í númerið sem rafræn skilríki tengjast. Það er á ábyrgð forsjáraðila að senda strikamerkið áfram ef hann vill að einhver annar fylgi barninu í bólusetningu. Ef einhver mætir með barn án strikamerkis á bólusetningarstað er kennitölu barns flett upp. Þá sést hvort óskað hefur verið eftir bólusetningu og hverjir eru skráðir með leyfi til að mæta með barnið. Í þeim tilfellum er spurt um skilríki.

  1. Forsjáraðilar barna á þessum aldri sem ekki nota rafræn skilríki geta mætt sjálfir með barnið á bólusetningarstað og þurfa að hafa skilríki meðferðis.
  2. Aðilar án kennitölu geta skráð barn sitt í bólusetningu á bolusetning.covid.is (enska: vaccine.covid.is) til að flýta fyrir ferli á bólusetningarstað og mæta svo sjálfir með barni sínu þangað á auglýstum tíma.

Bólusetning bíður eða er hafnað:

  • Ef forsjáraðili hefur afþakkað bólusetningu með rafrænum skilríkjum getur annar forsjáraðili ekki breytt því. 
  • Afþökkun eftir samþykki óvirkjar útgefið strikamerki. Virkt strikamerki á bólusetningastað er þannig staðfesting á að samþykki fyrir bólusetningu liggi fyrir.
  • Til að afþakka bólusetningu án rafrænna skilríkja þarf að senda tölvupóst á skólahjúkrunarfræðing í skóla barnsins. Höfnun sem berst þessa leið innan sólarhrings fyrir áætlaða bólusetningu næst ekki með vissu að skrá áður en bólusetning fer fram. Einungis forsjáraðilar með lögheimili með barni geta afþakkað bólusetninguna.
  • Allir aðilar sem hafa skráð sig inn í kerfið fá tilkynningu um breytingar á skráningu barna í þeirra forsjá.

Útkljá þarf ósætti milli forsjáraðila á öðrum vettvangi, bólusetning verður áfram í boði ef forsjáraðilar sammælast um að hún verði gerð.

Algengar spurningar

Hvað með börn sem hafa fengið COVID-19? 
Þau eiga að bíða með bólusetningu í 3 mánuði eftir sýkingu.

Hvað með börn sem eru lasin á bólusetningardegi?

Þau ættu að bíða með bólusetningu þar til þau hafa jafnað sig af veikindunum. Ef þau reynast vera með COVID-19 er rétt að bíða með bólusetningu í a.m.k. 3 mánuði eftir smitið.

Hvað með börn sem hafa fengið bráðaofnæmi fyrir öðrum bóluefnum eða stungulyfjum?

Þau ættu ekki að fá bólusetningu gegn COVID-19 nema í samráði við sérfræðing í ofnæmislækningum.

Ef foreldri á fleiri en eitt barn á þessum aldri má koma með bæði/öll á sama tíma? 
Já.

Ef barn kemst ekki í bólusetningu á boðuðum tíma verður hægt að fá bólusetningu síðar?
Já, heilsugæslan á hverjum stað auglýsir fyrirkomulag.

Hver veit hvort barn er bólusett?
Valdir starfsmenn í heilsugæslu hafa aðgang að bólusetningakerfinu. Þeir eru allir bundnir af þagnarskyldu. Starfsfólk skóla fær ekki upplýsingar frá heilsugæslunni um hvort barn er bólusett eða ekki.

Börn sem verða 12 ára í janúar 2022

Foreldrar barna sem verða 12 ára í janúar og vilja bólusetningu vinsamlegast hafið samband við hildurep@hvest.is fyrir frekari upplýsingar.

Grímuskylda er fyrir fullorðna og hvatt til grímunotkunar hjá börnum.

Miðvikudagur 19. janúar  

Heilsugæslustöðin á Ísafirði

13:005. og 6. bekkur Grunnskóla Bolungarvíkur fædd í janúar, febrúar og mars
13:105. og 6. bekkur Grunnskóla Bolungarvíkur fædd í apríl, maí og júní 
13:205. og 6. bekkur Grunskóla Bolungarvíkur fædd í júlí, ágúst og september
13:305. og 6. bekkur Grunnskóla Bolungarvíkur fædd í október, nóvember og desember
13:40Börn úr öllum bæjum norðanverðra Vestfjarða fædd 2016 og 2017 í janúar
13:50Börn úr öllum bæjum norðanverðra Vestfjarða fædd 2016 í febrúar
14:00Börn úr öllum bæjum norðanverðra Vestfjarða fædd 2016 í mars
14:10Börn úr öllum bæjum norðanverðra Vestfjarða fædd 2016 í apríl
14:20Börn úr öllum bæjum norðanverðra Vestfjarða fædd 2016 í maí
14:30Börn úr öllum bæjum norðanverðra Vestfjarða fædd 2016 í júní
14:40Börn úr öllum bæjum norðanverðra Vestfjarða fædd 2016 í júlí
14:50Börn úr öllum bæjum norðanverðra Vestfjarða fædd 2016 í ágúst
15:00Börn úr öllum bæjum norðanverðra Vestfjarða fædd 2016 í september
15:10Börn úr öllum bæjum norðanverðra Vestfjarða fædd 2016 í október
15:20Börn úr öllum bæjum norðanverðra Vestfjarða fædd 2016 í nóvember
15:30Börn úr öllum bæjum norðanverðra Vestfjarða fædd 2016 í desember