Vegna sumarleyfa lækna og annars starfsfólks verður opnunartími heilsugæslustöðva sem hér segir:

Heilsugæslustöðvarnar á Ísafirði og Patreksfirði eru opnar alla virka daga.

Heilsugæsluselin á Suðureyri, í Súðavík og á Flateyri verða lokuð frá 21. maí – 31. ágúst.

Heilsugæsluselið á Þingeyri verður opið á þriðjudögum kl. 09:00 – 15:00.

Heilsugæsluselið í Bolungarvík verður opið á fimmtudögum kl. 09:00-12:00.

Heilsugæsluselin á Tálknafirði og Bíldudal verða með hefðbundin opnunartíma eins og hægt er; Tálknafjörður á fimmtudögum frá kl. 10:00-12:00 og á Bíldudal eftir hádegi.