Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur úthlutað 77 milljónum króna til tækjakaupa á heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni og af þeirri upphæð fær heilbrigðisstofnun Vestfjarða styrk upp á 26 milljónir króna til tækjakaupa.
Styrkurinn skiptist á milli fjögurra brýnna verkefna:
Ómtæki 9 m.kr.
Þrír monitorar 7 m.kr.
Stuðtæki á Ísafjörð og Patreksfjörð 7 m.kr.
Svæfingastæða með 2 blöðum (videoscope) 3 m.kr.
Ráðstöfun fjármagnsins byggist á forgangsröðun í samræmi við brýnustu þarfir stofnananna. Víða er uppsöfnuð innviðaskuld sem mikilvægt er að mæta til að efla viðbragðsgetu stofnananna, tryggja gæði þjónustu og öryggi sjúklinga, bæta greiningar- og meðferðargetu og stuðla að hagkvæmari rekstri.
Þessi tækjabúnaður er mikilvægur til að efla viðbragðsgetu, tryggja gæði þjónustu og öryggi sjúklinga. Það er afar ánægjulegt að slíkur styrkur rati þangað sem hans er sannarlega þörf og að heilbrigðisstofnunum víða á landsbyggðinni sé sýnd þessi viðleitni til að uppfæra mikilvægan tækjabúnað.
