Við viljum minna á stoðkerfismóttökuna sem er þjónusta sjúkraþjálfara á heilsugæslunni á Ísafirði. Hægt er að bóka tíma í stoðkerfismóttökuna til að fá mat og ráðleggingar sjúkraþjálfara við stoðkerfisverkjum. Sjúkraþjálfarinn getur vísað til læknis eða í almenna meðferð sjúkraþjálfara ef þörf er á.

Nánari upplýsingar má finna hér á upplýsingasíðu stoðkerfismóttökunnar.