Á starfsstöð Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða á Patreksfirði er hjarta starfseminnar á suðursvæðinu. Þar er allri almennri heilbrigðisþjónustu sinnt fyrir íbúa Vesturbyggðar.

Hjúkrunarstjóri á Patreksfirði er Hrafnhildur Ólöf Ólafsdóttir.

Rekstrarstjóri er Magnús Arnar Sveinbjörnsson

Hjúkrunar- og sjúkradeild

Hjúkrunar- og sjúkradeild er með ellefu hjúkrunarrýmum og tveimur sjúkrarýmum. Deildarstjóri er Árný Magnúsdóttir.

Heilsugæsla

Heilsugæslan á Patreksfirði veitir fjölbreytta heilsugæsluþjónustu. Til viðbótar við þjónustu læknis og hjúkrunarfræðinga koma á heilsugæsluna ljósmóðir og aðrir sérfræðingar frá starfsstöð á Ísafirði.

Skólahjúkrun er veitt frá heilsugæslu í skólana á svæðinu. Skólahjúkrunarfræðingur er Árný Magnúsdóttir.

Meðgöngu- og mæðravernd er veitt af ljósmæðrum HVest á Ísafirði. Hjúkrunarfræðingur í ungbarnavernd er Alexandra Bubica.

Heimahjúkrun

Heil­brigð­is­stofnun Vest­fjarða og Vest­ur­byggð hafa gengið til samn­inga um rekstur samþættrar heima­þjón­ustu í sveit­ar­fé­laginu. Samn­ing­urinn er hluti af verk­efninu Gott að eldast, aðgerða­áætlun stjórn­valda í málefnum eldra fólks. Heilbrigðisstofnunin er að taka að sér rekstur heimastuðnings í samstarfi við sveitarfélagið. Samningurinn gildir þar til heildarsamingur verður gerður milli Ísafjarðarbæjar, Vesturbyggðar, Súðarvíkurhrepps, Bolungarvíkurkaupsstaðar og Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða.

Heimahjúkrun og heimastuðningur er veittur frá heilsugæslunni af nýju heimaþjónustuteymi Gott að eldast. Sótt er um heimahjúkrun í gegnum lækni á heilsugæslu og heimaþjónustu í gegnum Vesturbyggð.

Verkefnastjóri heimahjúkrunar er Sigríður María Sigurðardóttir.

Ábyrgðarmaður heimaþjónustuteymis er hjúkrunarstjóri.

Sjúkrahúsið á Patreksfirði. Í húshlutanum til vinstri, sem byggður var á árunum 1944–6 er hjúkrunardeild, sjúkrarými, eldhús og ýmis stoðrými. Í nýrri hlutanum sem byggður var 1976–82 og er til hægri, er matsalur íbúa hjúkrunarheimilisins á efstu hæð. Á aðalhæð er heilsugæsla og í kjallara endurhæfing, þvottahús, kapella og fleira.

Í baksýn sést glitta í kirkjuturninn og grunnskólann, og þar fyrir aftan Vatneyri í baksýn. Myndin er tekin ofan af snjóflóðavarnargarði sem stendur eftir hlíðinni endilangri.

Endurhæfing

Á stofnuninni er sjúkraþjálfari í hlutastarfi sem sinnir hjúkrunar- og sjúkradeildinni og heilsugæslu. Sjúkraþjálfari er Margrét Brynjólfsdóttir. Með henni starfar aðstoðarmaður sjúkraþjálfara Bjarnveig Guðbrandsdóttir sem hefur það meginhlutverk að sinna virkni og endurhæfingu á Hjúkrunar- og sjúkradeild Patreksfjarðar.

Í kjallaranum er aðstaða fyrir göngudeildarþjónustu og kemur sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari frá Ísafirði eina til tvær helgar í mánuði. Unnið er að því að bæta þessa mönnun. Sjúkraþjálfarar sem vilja koma til starfa, sjálfstætt eða undir hatti stofnunarinnar, geta haft samband við Hrafnhildi.

Sjúkraflutningar

Sjúkraflutningum fyrir svæðið er sinnt af sjúkraflutningamönnum á bakvöktum með starfsstöð í húsnæði Rauða krossins á Vatneyri.

Hluti sjúkraflutningamanna í ágúst 2021.

Gagngerar endurbætur

Samkvæmt áætlun heilbrigðisráðuneytisins um uppbyggingu hjúkrunarrýma frá haustinu 2019 eru fyrirhugaðar gagngerar endurbætur á sjúkrahúsinu. Vesturbyggð hyggst í samhengi við framkvæmdirnar byggja aðstöðu fyrir félagsstarf eldri borgara auk þess sem nokkrar aðrar breytingar verða gerðar á sjúkrahúsinu í tengslum við framkvæmdirnar. Stefnt var að því að halda hugmyndasamkeppni árið 2023.

Uppfært 11. september 2024 (HÓÓ)

Var síðan gagnleg?