Starfseining: Heilsugæsla Norðursv., 400 Ísafjörður
Umsóknarfrestur: frá 29.04.2024 til 26.08.2024.
Starfshlutfall: 100%
Við leitum að drífandi einstaklingi til að sinna starfi yfirlæknis heilsugæslu á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Um er að ræða 100% ótímabundið starf á spennandi vettvangi sem er bæði ábyrgðamikið og krefjandi.
Yfirlæknir stýrir daglegum rekstri heilsugæslunnar á Ísafirði, þar sem aðalstarfsstöð er, og ber faglega ábyrgð á heilsugæsluþjónustu allrar stofnunarinnar. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri lækninga.
Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 270 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef stofnunarinnar (www.hvest.is).
Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs og aðstoð við öflun húsnæðis.
Verkefni
- Yfirumsjón með daglegri starfsemi heilsugæslu á Ísafirði
- Fagleg ábyrgð á heilsugæsluþjónustu allrar stofnunarinnar
- Mannaforráð með læknum á heilsugæslu á Ísafirði, þ.m.t. verktökum
- Umsjón með námi læknanema, kandídata og sérnámslækna
- Almenn störf heimilislæknis ásamt vinnu á öðrum deildum stofnunar eftir samkomulagi
- Áætlanagerð, umbætur og þróun starfsemi
Hæfnikröfur
- Íslenskt lækningaleyfi og sérfræðileyfi í heimilislækningum
- Framúrskarandi samskiptafærni og góð leiðtogafærni
- Frumkvæði og faglegur metnaður
- Skipulagshæfni, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Drifkrafur og árangursmiðað viðhorf
- Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar starfsstéttir og þátttaka í teymisvinnu
Laun
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Tengiliður/ir
- Súsanna Björg Ástvaldsdóttir (susannaba@hvest.is | 450 4500)