Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er hástökkvari stórra stofnana í könnun Sameykis á stofnun ársins 2019.

„Þessar niðurstöður eru einstaklega gleðilegar og staðfesting á þeirri tilfinningu sem við höfum haft að starfsandi innan stofnunarinnar og ánægja hafi aukist og ímynd hennar og stolt starfsfólksins hafi batnað á síðustu misserum,“ segir Gylfi Ólafsson forstjóri.

Í fyrra náði Heilbrigðisstofnun Vestfjarða lágmarksþátttöku til að vera með í könnuninni, eftir að hafa ekki náð því árin á undan. Stofnunin var þá í 74. sæti af 82 stofnunum með 50 starfsmenn eða fleiri. Stofnunin var lægst meðal heilbrigðisstofnana og undir meðaltali þeirra í undirliðum sem mældu ánægju og stolt, ímynd stofnunar, starfsanda og stjórnun.

Mikill viðsnúningur

Þetta hefur snúist við milli ára. Stofnunin hoppar upp um 34 sæti, en engin stór stofnun hækkar jafn hratt milli ára, sjá mynd 1

Í júlí 2018 tók Gylfi Ólafsson við starfi forstjóra stofnunarinnar og í kjölfarið varð mikil endurnýjun í stjórnendateymi hennar. Framkvæmdastjóri lækninga, mannauðs- og rekstrarstjóri, fjármálastjóri og hjúkrunarstjóri á Patreksfirði hafa öll komið ný til starfa síðan. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er nú komin upp í meðaltal allra stofnana, og eftir að hafa verið nokkuð fyrir neðan meðaltal heilbrigðisstofnana mælist heildareinkunn nú yfir meðaltali systurstofnana. Sjá myndir 2 og 3

Einkum eru það undirliðirnir stjórnun, starfsandi, launakjör, ímynd stofnunar, og ánægja og stolt sem hækka milli ára, sjá mynd 4.

Svarhlutfall jókst töluvert milli ára. Ekki er hægt að útiloka að það hafi áhrif á niðurstöðurnar.

Góður millitími en áfram verk að vinna

„Til að veita okkar lífsnauðsynlegu þjónustu er grundvallaratriði að starfsfólkinu líði vel. Þess vegna er það stærsta hlutverkið mitt sem leiðtoga að stuðla að því með öllum ráðum. Þessar niðurstöður eru góður millitími og sýna okkur að umbætur geta fljótt borið mælanlegan árangur, en þær sýna okkur einnig hvar skóinn kreppir og hvar við eigum að einbeita okkur á komandi misserum. Þar erum við með mörg verkefni í undirbúningi,“ segir Gylfi.


Mynd 1: Röðun 2018 og 2019. http://hvest.is/um_hvest/skraarsafn/skra/43


Mynd 2: Meðaleinkunn 2018 og 2018 samanborin við allar stórar stofnanir. http://hvest.is/um_hvest/skraarsafn/skra/44


Mynd 3: Meðaleinkunn samanborin við systurstofnanir. http://hvest.is/um_hvest/skraarsafn/skra/45

Höf.:GÓ