Frá áramótum er heilsugæslan á Patreksfirði opin frá 08:00–15:00 alla virka daga. Þetta hefur enga þjónustuskerðingu í för með sér.

Stutt bið er eftir tímum hjá lækni. Áfram er bráðaþjónusta veitt allan sólarhringinn eftir símtal í 1700 eða, ef um neyðartilvik er að ræða, 112. Heimsóknir á hjúkrunar- og sjúkradeildina eru óbreyttar.