Við vekjum athygli á að Bjarkarhlíð – miðstöð fyrir þolendur ofbeldis er með þjónustu á Ísafirði og næsti dagur sem hægt er að bóka viðtal á Ísafirði er 22. apríl.

Bjarkarhlíð er samstarfsverkefni dómsmálaráðuneytis,

félags- og húsnæðismálaráðuneytis, Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu,

Reykjavíkurborgar, Kvennaathvarfsins, Stígamóta og Kvennaráðgjafarinnar og tók til starfa

1. febrúar 2017.

Markmið með starfi Bjarkarhlíðar er að veita þverfaglega ráðgjöf og stuðning, ásamt fræðslu

og umfjöllun um eðli og afleiðingar ofbeldis, auk þess að gefa skýr skilaboð um að ofbeldi

verði ekki liðið. Þjónustan er áfallamiðuð og er fyrir þolendur ofbeldis af öllum kynjum, 18

ára og eldri. Hér er hægt að bóka tíma í ráðgjöf