Með hækkandi sól fer að bera á vorboðum og nú erum við hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða að auglýsa eftir sumarstarfsfólki.
Okkur vantar sumarafleysingu í hin ýmsu störf á öllum fjórum starfsstöðvum. Við erum að auglýsa eftir fólki til að starfa við aðhlynningu á öllum starfsstöðvum, hjúkrunarfræðingum bæði á Ísafirði og Patreksfirði, ljósmóður, sjúkraliðum á allar starfsstöðvar, ræstitæknum á Ísafirði, rekstrarstjóra á Patreksfirði og móttökuriturum á Ísafirði og Patreksfirði. Einhverjar auglýsingar eiga svo eftir að bætast við þannig að það er um að gera að fylgjast með undir laus störf hérna á heimasíðunni.

Menntaskóla- og háskólanemar velkomnir
Nemendur af efri skólastigum eru velkomnir. Heilbrigðiskerfið er fjölbreytt og spennandi, og þá er ómetanlegt að fá starfsreynslu til að kynnast hinum ýmsu störfum og geta þannig tekið betri ákvarðanir um náms- og starfsval.
Háskólanemar, bæði í heilbrigðisgreinum en einnig hverju sem er, koma margir ár eftir ár.
Einnig laus ótímabundin störf
Undir laus störf er einnig auglýst eftir sálfræðingi, hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum í framtíðarstörf.
Auk þess er það oft svo að fólk sem kemur í afleysingar ílengist og verður framtíðarstarfólk.
Bendum á að það er hægt að vera á skrá og senda inn almenna umsókn en það er gert á sama stað eða undir laus störf.
Laus störf
-
Sálfræðingur í geðheilsuteymi – starf án staðsetningar
Starfseining: Heilsugæsla Norðursv., 400 Ísafjörður Umsóknarfrestur: frá 09.06.2026 til 26.06.2026. Starfshlutfall: 100%
-
Yfirmatráður á Bergi í Bolungarvík
Starfseining: Hjúkrunardeild Bolungarvík, 415 Bolungarvík Umsóknarfrestur: frá 09.06.2026 til 23.06.2026. Starfshlutfall: 70%
-
Viltu vera á skrá? Almenn störf hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Starfseining: Skrifstofa, 400 Ísafjörður Umsóknarfrestur: frá 07.05.2026 til 01.08.2030. Starfshlutfall: 20-100%
-
Starfsfólk í aðhlynningu óskast til starfa á Patreksfirði
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Patreksfirði óskar eftir að ráða starfsfólk í 70-100% starf við aðhlynningu Helstu verkefni og ábyrgð Aðhlynning og önnur tilfallandi verkefni. Þetta er kjörin staða fyrir þau sem vilja öðlast fjölbreytta reynslu í hvetjandi starfsumhverfi. Á deildinni starfar öflugur hópur og er þar góður starfsandi sem einkennist af samheldni, vináttu, metnaði og gleði.…
-
Hjúkrunarfræðingur á Sjúkradeild á Ísafirði
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa á sjúkradeild á Ísafirði. Um er að ræða 80-100% starf í vaktavinnu. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 270 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum. Boðið…
-
Sjúkraliði óskast til starfa á Sjúkradeild á Ísafirði
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði óskar eftir að ráða sjúkraliða í 70-100% starf eða eftir samkomulagi. Ráðið verður frá 1. september 2025 eða eftir samkomulagi. Hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa rúmlega 270 manns og veitir stofnunin almenna heilbrigðisþjónustu á þremur sviðum; hjúkrunarsviði, heilsugæslusviði og sjúkrasviði, með sjúkrahús á Ísafirði og Patreksfirði. Í teyminu er lögð rík áhersla…