Á fundi með starfsmönnum þann 23. mars var kynnt nýtt skipurit stofnunarinnar en það mun taka gildi 1. apríl næst komandi.
Helsta breytingin í nýju skipuriti stofnunarinnar frá því sem áður var er sú að hér eftir verður litið á stofnunina sem eina heild sem starfar í mismunandi deildum og á nokkrum stöðum í stað þess að á hana verði litið sem margar stofnanir með sameiginlegri yfirstjórn.
Breytingar á yfirstjórn verða þær að ráðinn verður einn lækningaforstjóri fyrir stofnunina og reiknað er með því að hann gengni að megin hluta öðrum störfum.
Lagðar verða niður tvær stöður hjúkrunarforstjóra (sjúkra- og heilsugæslusviða) og ráðinn einn í þeirra stað. Reiknað er með því að nýr hjúkrunarforstjóri gegni jafnframt öðrum störfum innan stofnunarinnar.
Rannveig Björnsdóttir deildarstjóri öldrunarlækningadeildar er settur hjúkrunarforstjóri í apríl.
Nánari upplýsingar um skipulag stofnunarinnar munu verða birtar hér á heimasíðunni fljótlega.
Höf.:ÞÓ