12. mars 2014 var haldinn stofnfundur Hjúkrunarráðs HV. Hjúkrunarráð og Læknaráð eru fagráð sem getið er í 15. gr. laga um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007. Í hjúkrunarráði sitja allir hjúkrunarfræðingar sem eru við störf á HV og hafa verið það í 3 mánuði eða lengur.
Hlutverk Hjúkrunarráðs HV er að:
- Stuðla að því að hjúkrunin grundvallist ætíð á gildandi lögum, reglugerðum og siðareglum í samræmi við stefnu og markmið hjúkrunar á HV.
- Vera faglegur og ráðgefandi aðili varðandi málefni er varða hjúkrunar- og ljósmóðurfræði á HV, svo og rekstur, stjórnun, uppbyggingu og nýtingu sjúkrahúss og heilsugæslu.
- Vera ráðgefandi vettvangur fyrir hjúkrunarfræðinga, ljósmæður og stjórnendur HV.
- Hafa frumkvæði og vera vettvangur faglegra umræðna um hjúkrun.
- Hvetja til þróunarvinnu með eflingu klínískra rannsókna í hjúkrun og tengslum við menntastofnanir í heilbrigðisfræðum.
- Taka til umfjöllunar og eða umsagnar málefni sem vísað er til ráðsins.
Stjórn Hjúkrunarráðsins skipa:
Sara Guðmundsdóttir, formaður
Hildur Elísabet Pétursdóttir
Jóhanna Oddsdóttir
Rakel Rut Ingvadóttir
Fundargerð stofnfundar, Starfsreglur Hjúkrunarráðsins og upplýsingar um stjórn eru á innra neti HV.
Höf.:HH