Ponizej po Polsku
English below
Í vikunni hefst skimun meðal íbúa á norðanverðum Vestfjörðum fyrir Covid-19. Skimað verður í Bolungarvík og á Ísafirði. Þetta er samvinnuverkefni Íslenskrar erfðagreiningar og Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða.
Skimunin er fyrir einstaklinga sem ekki finna fyrir einkennum og er ókeypis. Einstaklingar í sóttkví eða einangrun skulu halda sig heima. Þeir sem finna til einhverra einkenna skulu hafa samband við 450-4500 til að fá tíma í sýnatöku hjá heilbrigðisstofnuninni.
Skimað verður miðvikudaginn 15. apríl, fimmtudaginn 16. apríl og föstudaginn 17. apríl.
Hægt er að velja á milli fimm skimunarstaða:
- Björgunarsveitarhúsið við Hafnargötu í Bolungarvík (á bíl)
- Skoðunarstöð Frumherja við Skeiði á Ísafirði (á bíl)
- Crossfit-stöðin við Sindragötu á Ísafirði (á bíl)
- Kampaskemman (Aldrei fór ég suður-skemmuna) við Ásgeirsgötu (á bíl)
- Úti við kjallara sjúkrahússins á Ísafirði (gangandi).
Sjá örvar á kortum til að sjá úr hvaða átt komið er að húsunum. Æskilegt er að drepa á bílnum meðan beðið er.
Heilbrigðisstarfsfólk tekur sýni úr bæði hálskoki og nefkoki. Niðurstað greiningarinnar verður birt á vefnum heilsuvera.is og hringt er í alla sem reynast bera smit.
Bóka þarf tíma á vef Íslenskrar erfðagreiningar, https://bokun.rannsokn.is/.
Best er að nota rafræn skilríki en hægt er einnig að nota kennitölu og símanúmer.
Skimað verður á sunnanverðum Vestfjörðum á næstu dögum eða vikum.
English.
Íslensk erfðagreining (deCODE genetics) is screening for COVID-19 in the general population in Iceland.
The objective is to learn about community spread of the virus.
The testing is free of charge. You can register by visiting https://bokun.rannsokn.is/.
Polski
Íslensk erfðagreining (deCODE genetics) prowadzi badania na terenie Islandii wykonując testy pod kątem COVID-19.
Celem badań jest poznanie w jaki sposób wirus rozprzestrzenia się w społeczeństwie.
Testowanie jest bezpłatne. Możesz się zarejestrować odwiedzając stronę internetową: https://bokun.rannsokn.is/.
Höf.:GÓ