Í húsnæði Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða fer fram rafræn vöktun með eftirlitsmyndavélum í öryggis- og eignavörsluskyni. Um er að ræða myndbandsupptökur án hljóðs og hljóðritun símtala.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er ábyrgðaraðili vöktunarinnar og tryggir öryggi persónuupplýsinga þeirra sem sæta vöktun. Við vöktunina er sérstaklega hugað að því að gæta meðalhófs og að ganga ekki lengra en þörf krefur til að virða einkalífsrétt þeirra er vöktunin beinist að. Vöktunin fer eingöngu fram í skýrum, málefnalegum og lögmætum tilgangi.
Ákveðnir verkferlar gilda um skoðun efnis sem verður til við vöktunina og er slíkt einungis skoðað af þeim sem hafa til þess skýra heimild.
Umfang vöktunar
Myndavélar eru settar upp á göngum, almenningsrýmum og við innganga stofnunarinnar þar sem vöktun er talin nauðsynleg. Merkingar á vöktun eru sjáanleg áður en komið er inn á vaktað svæði og veita upplýsingar um vöktunina, þar á meðal hlekk á þessa síðu.
Áður en upptaka hefst á símtölum, eru spiluð skilaboðin „Símtalið er hljóðritað“. Við lok upptöku spilast skilaboðin „Upptöku lýkur“.
Réttur þeirra sem vöktun sæta
Sá sem sætt hefur rafrænni vöktun á rétt á að skoða gögn sem til verða um viðkomandi við vöktunina. Skal heimila skoðun jafn fljótt og auðið er og eigi síðar en innan eins mánaðar frá móttöku slíkrar beiðni. Þetta á þó ekki við ef réttur þess sem sætt hefur vöktuninni til að fá að skoða gögnin þykir eiga að víkja að nokkru eða öllu fyrir hagsmunum annarra en hans eigin. Ef óljóst er hvort verða á við beiðni um skoðun eða hlustun er efni sent til lögreglu eða Persónuverndar til skoðunar.
Varðveisla persónuupplýsinga sem verða til við rafræna vöktun
Upplýsingar sem verða til við rafræna vöktun verða varðveittar að hámarki í 90 daga. HVEST eyðir upptökum að þeim tíma liðnum. Þetta á ekki við um upptökur sem hafa verið sendar lögreglu vegna slysa eða refsiverðra mála, upptökur vegna sönnunar krafna í dómsmálum eða annarra slíkra laganauðsynja eða að Persónuvernd heimili sérstaklega eða mæli fyrir um lengri varðveislutíma.
Andmæli við framkvæmd vöktunar
Kom fram athugasemdir eða andmæli við framkvæmd vöktunar og/eða ábendingar um að hún uppfylli ekki þær kröfur sem settar eru í reglum þessum eða lögum skal hafa samband við persónuverndarfulltrúa Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@hvest.is eða hringja í síma 450 4500.
Einnig má senda kvörtun til Persónuverndar á heimasíðu þeirra https://www.personuvernd.is/hafa-samband/.
Lög og reglur
Reglur Heilbrigðisstofnun Vestfjarða um öryggisvöktun byggja á:
Uppfært 5. febrúar 2024 (JEÚ)