Sóttvarnarlæknir mælir með bólusetningum gegn barnaveiki og mænusótt fyrir öll ferðalög erlendis, fyrir einstaklinga 24 ára og eldri sem ekki hafa fengið slíkar bólusetningar á sl. 10 árum.

Foreldrar barna sem munu ferðast á næstunni eru hvattir til að staðfesta að börn hafi fengið alla skammta sem mælt er með miðað við aldur.
Tilefnið er aukinn innflutningur barnaveiki til Evrópu það sem af er ári og dreifing mænusóttarveiru í Bretlandi, Bandaríkjunum og víðar.

Hægt er að sjá bólusetningar sem gerðar hafa verið hér á landi frá 2004 á heilsuvera.is

Bólusetningar eru gerðar hjá heilsugæslunni og aðilum sem sinna ferðamannaheilsuvernd.

Bólusetningar utan almennra bólusetninga barna og óbólusettra fullorðinna eru á kostnað einstaklinga.

Hægt er að panta tíma í bólusetingu á HVest í síma 450 -4500