Starfseining: Heilsugæsla Norðursv., 400 Ísafjörður Umsóknarfrestur: frá 16.07.2026 til 14.08.2026. Starfshlutfall: 70-100%

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing á heilsugæslu stofnunarinnar á Ísafirði. Starfið felur í sér almenna heilsugæsluhjúkrun,  Boðið er upp á fjölbreytt starf í örvandi starfsumhverfi og góðum starfsanda. 

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 250 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum.  Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.

Verkefni

Starfið er fjörlbreytt og víðtækt s.s heilsuvernd ungbarna, skólahjúkrun, hjúkrunarvakt og margt fleira á heilsugæslustöðinni á Ísafirði og í heilsugæsluselum á norðanverðum Vestfjörðum.

Hæfnikröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Sérnám í heilsugæsluhjúkrun er kostur og /eða reynsla af vinnu á heilsugæslu
  • Sjálfstæði og metnaður í starfi
  • Íslenskukunnátta áskilin
  • Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Ökuréttindi eru nauðsynleg

Laun

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Tengiliður/ir

Sækja um

Smelltu hér til að sækja um starfið