Inflúensubólusetningar hefjast þann 14. október nk. og lýkur þann 29. nóvember.
Bólusett er alla virka daga frá kl: 10:00 – 11:30 & 14:00 – 15:30 á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði.
Á stöðvum utan Ísafjarðar verður bólusett á opnunartíma heilsugæslusela í Bolungarvík, Suðureyri, Súðavík og Þingeyri.
Flateyri: Bólusett verður á Flateyri þann 16.10.2019 frá kl: 13:30 -14:30. Staðsetning: Bryggjukaffi.
Nauðsynlegt er að panta tíma í bólusetningu í síma:
450-4500
Allir sem fá bólusetningu þurfa að greiða komugjald á heilsugæslustöðina, en einstaklingar 60 ára og eldri, og þeir sem tilheyra eftirtöldum áhættuhópum, fá bóluefnið sér að kostnaðarlausu. Munið að framvísa afsláttar- og/eða örorkuskírteini við komuna.
Sóttvarnalæknir mælist til þess að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar:
- Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
- Öll börn og fullorðnir einstaklingar sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdóma, sykursýki, illkynja sjúkdóma og aðra ónæmisbælandi sjúkdóma.
- Heilbrigðisstarfsmenn sem annast sjúklinga í áhættuhópum hér að ofan.
- Þungaðar konur.
Einnig er mælt með því að sömu einstaklingar séu bólusettir á 10 ára fresti gegn lungnabólgu.