Hjartaheill og SÍBS í samstarfi við sveitarfélög og Heilbrigðisstofnun Vestfjarða munu bjóða Vestfirðingum ókeypis heilsufarsmælingu 24.- 26. maí í stað þeirra sem frestað var 10.-11. maí vegna veðurs. Mælingarnar ná til helstu áhættuþáttta lífsstílssjúkdóma þar sem mældur er blóðþrýstingur, blóðsykur, blóðfita, súrefnismettun og styrkur auk þess sem boðið verður upp á öndunarmælingu fyrir þá sem mælast lágir í súrefnismettun. Jafnframt gefst þátttakendum kostur á að svara lýðheilsukönnun. Fræðsla um lífsstílstengda sjúkdóma verður í boði, hjúkrunarfræðingar frá heilsugæslunni verða á staðnum og veita ráðgjöf og eftirfylgd.
Heilsufarsmælingarnar verða á eftirtöldum stöðum:
Bolungarvík, Höfðastíg 15, miðvikudaginn 24. maí, kl. 14 – 17
Suðureyri, Aðalgötu 2, miðvikudaginn 24. maí, kl. 19 – 21
Ísafirði, Torfnesi, fimmtudaginn 25. maí, kl. 11 – 15
Súðavík, Grundarstræti 1, fimmtudaginn 25. maí, kl. 17 – 19
Þingeyri, Vallargötu 7, föstudaginn 26. maí, kl. 10 – 12
Flateyri, Eyrarvegi 8, föstudaginn 26. maí, kl. 14 – 16
Þátttakendum gefst kostur á að fá sínar niðurstöður sendar í tölvupósti ásamt heildarniðurstöðum. Oddvitar, bæjar- og sveitarstjórar munu opna mælingarnar í sinni heimabyggð.
Höf.:SÞG