Gylfi Ólafsson, sem verið hefur forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða frá júlímánuði 2018, og lauk þannig fimm ára skipunartíma sínum í sumar, hefur sent heilbrigðisráðherra bréf með ósk um lausn frá störfum. Hildur Elísabet Pétursdóttir verður forstjóri frá 16. október þangað til nýr forstjóri tekur við.

„Tíminn í stofnuninni hefur verið afar skemmtilegur og lærdómsríkur. Mér hefur verið tekið vel af öllum innan og utan stofnunar, þar með talið í upphafi þegar ég tók til starfa fremur ungur og reynslulítill í störfum innan heilbrigðiskerfisins og stjórnun.

Fjölmargt hefur áunnist síðustu fimm ár. Niðurstöður úr könnun um stofnun ársins hafa verið hæstar hjá okkur tvö ár í röð, sé hún borin saman við systurstofnanir, en stofnunin var lægst í þessum samanburði 2018. Við höfum gert talsverðar breytingar til að sameina stofnunina í eina heild, gert samskipti innan stofnunarinnar skilvirkari, tekið í gagnið fjölmörg tölvukerfi, sett á fót geðteymi, keypt þrjú stór myndgreiningatæki og endurnýjað skurð- og slysastofur, þjálfað vettvangsliða, tekið skjalameðhöndlun fastari tökum, gefið aftur út ársskýrslur og haldið ársfundi, innleitt jafnlaunavottun og persónuvernd, innleitt nýtt útlit og gert aðrar innri breytingar sem of langt mál er að rekja. Þá marka viðbrögð við covid-faraldrinum djúp spor í sögu síðustu fimm ára.

Auðvitað hefur ekki allt gengið eins og í sögu. Stofnunin hefur verið rekin með talsverðum halla, húsnæðismál gætu verið betri og mönnun er stöðug áskorun, sérstaklega í læknaliðinu.  

Aðalatriðið er þó þetta: Hið raunverulega markmið með rekstri stofnunarinnar er að veita fjölbreytta og góða heilbrigðisþjónustu og það hefur tekist. Heilsugæslan hefur veitt æ meiri og skjótari þjónustu. Fæðingar- og skurðþjónustan stendur óhögguð þó gefið hafi á bátinn og aðstæður séu oft erfiðar. Starfsfólkið er frábært.

Tækifærin sem Vestfirðingar standa frammi fyrir eru á sama tíma gríðarleg. Hugur minn leitar nú í önnur verkefni hér á heimaslóð. Stofnunin á ekkert minna skilið en fulla athygli forstjóra síns. Ég mun kveðja stofnunina og starfsfólkið allt með söknuði og þakklæti.“

Stefnt er að því að Hildur Elísabet Pétursdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar verði sett forstjóri frá 16. október, og Rannveig Björnsdóttir deildarstjóri sjúkradeildar verði framkvæmdastjóri hjúkrunar þangað til nýr forstjóri hefur verið skipaður. Heilbrigðisráðuneytið mun auglýsa starfið á næstu vikum.