Fyrsta barn ársins 2026 á heilbrigðisstofnun Vestfjarða er stúlka sem fæddist þann 19. janúar. Foreldrarnir eru Tanja Björk Ómarsdóttir og Jakob Fannar Magnússon sem búsett eru á Ísafirði og heilsast móður og barni vel. Þetta er auðvitað birt með þeirra leyfi, og óskum við þeim innilega til hamingju með barnið.
Við erum afar stolt af fæðingardeildinni okkar og öllu góða starfinu sem þar fer fram. Það er því gaman að deila fréttum af störfum hennar.
Í upphafi árs birtu ljósmæður Hvest ýmsar tölur fyrir árið 2025. Á árinu fæddist 31 barn á Hvest, 14 stúlkur og 17 drengir og jókst fæðingartíðni um 9% frá árinu áður.
Á árinu 2025 voru þrjár starfandi Ljósmæður í fullu starfi við stofnunina og 1 ljósmóðir í afleysingarstöðu, þetta fyrirkomulag mun haldast óbreytt árið 2026. Meðfylgjandi er yfirlit yfir fæðingar árið 2025 á þessu fallega útsaumsverki sem fæðingardeildin er með hangandi uppi á deildinni. Fylgist endilega nánar með störfum þeirra á samfélagsmiðlum undir Hvestljósur.

