Heilbrigðisstofnun Vestfjarða var sett á rönguna í mars og var með mjög óhefðbundnum hætti allan aprílmánuð. 11. maí falla úr gildi sérstakar ráðstafanir sem hafa verið í gildi á norðanverðum Vestfjörðum. Smám saman, í varlegum skrefum, nær starfsemin svipuðum takti og verið hefur. Þjónusta heilsugæslu fer að taka á sig eðlilegan brag og Viðar tannlæknir byrjar aftur hér á Ísafirði.
Skrefin verða sum lítil og varfærin, sérstaklega þegar kemur að hjúkrunarheimilunum og legudeildunum. Þetta er gert til að minnka sem frekast er kostur líkur á að smit berist þangað inn.
Hér á sérstakri síðu eru nánari upplýsingar, en lykilatriðin eru þrjú:
- 1. Ef þú ert með minnsta kvef, hósta, hita, flensulík einkenni eða beinverki, ekki koma, heldur hafðu samband í síma 450 4500. Þú færð þá nánari upplýsingar um hvernig þú átt að bera þig að og hvar þú átt að koma, ef það er yfir höfuð þörf á.
- 2. Enginn má koma inn á heilsugæslu, í blóðprufur eða annað án þess að vera með bókaðan tíma. Hægt er að bóka tíma í síma og á Heilsuveru.
- 3. Heimsóknabanni verður aflétt í litlum skrefum frá 4. maí á Patreksfirði og 18. maí á Eyri, Bergi og Tjörn. Aðstandendur og íbúar hafa fengið upplýsingar frá starfsmönnum sem einnig svara spurningum sem upp koma.
Höf.:GÓ