Brjóstamiðstöð Landspítala verður á ferð um landið haustið 2025 með brjóstaskimun, í samstarfi við heilsugæsluna. Með brjóstaskimun er hægt að greina brjóstakrabbamein á byrjunarstigi og draga þannig verulega úr dánartíðni vegna sjúkdómsins.
Lögð er rík áhersla á að konur nýti sér þessa þjónustu.
Bókun á brjostaskimun@landspitali.is eða í síma 543 9560 kl. 9:00 – 15:30 virka daga.
