Næstkomandi fimmtudag, 25.febrúar, verða einstaklingar fæddir 1941 og fyrr bólusettir á norðanverðum Vestfjörðum.
Í þetta sinn verður bólusett í
- Bolungarvík klukkan 11:00 í Safnaðarheimilinu,
- Þingeyri á Tjörn klukkan 13:00
- Heilbrigðistofnunin á Ísafirði milli klukkan 11:00 og15:00.
Einstaklingarnir fá SMS í símann sinn þar sem kemur fram hvar og hvenær þeir eiga að mæta. Þeir Bolvíkingar sem ekki fá SMS í símann sinn mæta klukkan 11:00 í Safnaðarheimilið og Þingeyringar á Tjörn klukkan 13:00.
Ísfirðingar sem ekki fá SMS í símann sinn eru vinsamlegast beðnir um að koma klukkan 14:00 á Heilbrigðisstofnunina á Ísafirði. Einstaklingar á Suðureyri, Súðavík og Flateyri fá símhringingu um hvenær og hvert þeir eiga að mæta.
Íbúar á sunnanverðum Vestfjörðum fæddir 1941 og fyrr verður boðin bólusetning í vikunni. Allir verða boðaðir með símtali.
Við biðlum til fólks að fylgjast með boðun til eldri aðstandanda sinna þannig að enginn missi af bólusetningu.
Höf.:SS