Á bráðadeild Sjúkrahússins á Ísfirði er nú komin í notkun blóðskilunarvél. Tveir hjúkrunarfræðingar stofnunarinnar fóru og unnu á blóðskilunardeild Landspítala í tvær vikur og og sóttu fræðslu um notkun vélarinnar. Nú þegar hefur fyrsti skjólstæðingurinn komið í blóðskilun á bráðadeildina. Ungur ísfirðingur, sem hefur þurft að dveljast á sjúkrahóteli í Reykjavík í nær tvo mánuði, fær nú þessa lífsnauðsynlegu þjónustu hér í heimabæ.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða hefur gert samning við Landsspítala um samstarf um blóðskilun. Var sá samningur undirritaður nú fyrir helgi þegar tækið var tekið í notkun á Sjúkrahúsinu á Ísafirði.
Guðný Sæbjörg Jónsdóttir getur nú fengið blóðskilun hér í heimabyggð. Með Guðnýju á myndinni eru Guðbjörg Rós Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur og umsjónarmaður blóðskilunar og Jóhanna Aðalsteinsdóttir aðstoðarmaður Guðnýjar.
Samstarfssamningur um blóðskilun undirritaður. Gylfi Ólafsson forstjóri Hvest, Andri Konráðsson lækningarforstjóri, Selma Maríusdóttir deildarstjóri blóðskilunar á Landsspítala, Hildur Elísabet Pétursdóttir hjúkrunarforstjóri og Þórunn Pálsdóttir deildarstjóri bráðadeildar.
Höf.:SLG