Þriðjudaginn 22. október kl. 14-16 verður opinn kynningarfundur á verkefninu Gott að eldast í Edinborgarhúsinu á Ísafirði.

Dagskrá

  • Setning fundar
    Alberta Gullveig Guðbjartsdóttir, tengiráðgjafi Gott að eldast
  • Þróunarverkefnið Gott að eldast á Vestfjörðum: Samþætting félags- og heilbrigðisþjónustu
    Hildur Elísabet Pétursdóttir, framkvæmdarstjóri hjúkrunar á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
  • Heilsuefling og styrkur eldra fólks
    Heba Dís Þrastardóttir, þjálfari
  • „Það er pláss fyrir alla“: Vitundarvakning um heilbrigða öldrun og áhrif félagslegrar einangrunar á lífsgæði
    Líney Úlfarsdóttir, sálfræðingur og Svavar Knútur, tónskáld

Í lok fundar er boðið upp á kaffi og kynningu á íþrótta- og félagsstarfi eldra fólks.

Öll eru hjartanlega velkomin!