Sjúkraþjálfarar eru sérmenntaðir í stoðkerfi líkamans og í að greina frávik í virkni þess. Því fyrr sem sjúkraþjálfari kemur að vandamáli þar sem sérþekkingar hans er þörf, því meiri líkur eru á skjótari og betri bata. Nú hefur sjúkraþjálfari komið inn sem fyrsti móttökuaðili einstaklinga með stoðkerfisvandamál á Heilsugæslunni á Ísafirði.
Á stoðkerfismóttöku sjúkraþjálfara er veitt snemmtæk íhlutun í formi greiningar og ráðlegginga en ekki hefðbundin meðferð sjúkraþjálfara. Þannig er hægt að nálgast vandamálið fyrr og þar með minnka líkur á að það verði langvinnt.
- Stoðkerfismóttaka sjúkraþjálfara tekur á móti einstaklingum með einkenni og/eða verki frá stoðkerfi. Helsta markmið er að koma í veg fyrir versnun einkenna og koma bata í gang eins fljótt og hægt er.
- Sjúkraþjálfarinn veitir fyrst og fremst fræðslu og ráðleggingar í formi sjálfshjálpar á borð við æfingar, hvíldarstöður, teipingar, vinnustellingar eða sjálfsmeðferðar í formi hita og kælimeðferðar, mjúkvefjameðferðar eða annars.
- Eftirfylgni með ráðgjöfinni er veitt í formi símtals, oftast 2-3 vikum frá komu til sjúkraþjálfarans.
- Ef sjúkraþjálfari á heilsugæslu telur málið þess eðlis þá getur hann skrifað beiðni um sjúkraþjálfun og vísað einstaklingnum til meðferðar hjá sjúkraþjálfara utan heilsugæslunnar.
- Ef sjúkraþjálfari telur að einstaklingur sem leitar á stoðkerfismóttöku þurfi læknisskoðun eða myndrannsóknir þá hefur hann aðgang til að bóka tíma hjá lækni án þess að löng bið eftir tíma myndist.
Einstaklingar geta bókað sig beint í stoðkerfismóttöku á Ísafirði eða Patreksfirði í gegnum móttökuritara eða fengið tilvísun frá öðru heilbrigðisstarfsfólki svo sem læknum og hjúkrunarfræðingum.
Fyrirkomulag á Heilsugæslu Ísafirði
Boðið er upp á stoðkerfismóttöku sjúkraþjálfara 3x í viku á heilsugæslu. Tímarnir eru eftirfarandi:
- Á mánudögum frá 13:00-16:00
- Á miðvikudögum frá 8:00-10:00
- Á fimmtudögum frá 13:00-16:00
Aðstaðan er til staðar á endurhæfingardeild í herbergi númer 5
Fyrirkomulag á Heilsugæslu Patreksfirði
Boðið er upp á stoðkerfismóttöku sjúkraþjálfara 1x í viku á heilsugæslu. Tímarnir eru eftirfarandi
- Á miðvikudögum frá 10:00 – 12:00
Aðstaðan er til staðar á endurhæfingardeild en móttaka og greiðsla fer fram hjá riturum heilsugæslu
Uppfært 25. september 2024 (HÓÓ)