Breyting á fyrirkomulagi
Vegna óviðráðanlegrar manneklu hjúkrunarfræðinga á heilsugæslustöðinni á Ísafirði í sumar höfum við fengið Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar – 1700 til að hlaupa undir bagga með okkur með það fyrir augum að tryggja þeim sem leita til okkar með bráð erindi þjónustu samdægurs.
Reynslan af símaráðgjöf 1700 sýnir að með sérþjálfuðu starfsfólki er hægt að leysa úr stórum hluta fyrirspurna með ráðgjöf í síma og netspjalli. Hjúkrunarfræðingar í 1700 munu svo koma þeim skjólstæðingum áfram til hjúkrunarfræðinga og/eða lækna HVest sem þess þurfa.
Þessi þjónusta hefur verið í gangi bæði á Norðurlandi og Vesturlandi og gefist afar vel.
Miðvikudaginn 9. júlí stígum við þetta skref í samstarfi við Upplýsingamiðstöð HH og 1700.
1700 símaráðgjöf
Skjólstæðingar geta nú hringt í 1700 allan sólarhringinn og að auki er netspjall opið frá 8-22 alla daga vikunnar. Bráð erindi og ráðgjöf vegna veikinda fara í gegnum 1700 sem kemur þeim í réttan farveg innan heilsugæslu HVest.
Bráð erindi verða flokkuð í gegnum síma 1700. Þau sem þurfa frekari þjónustu við fá þá tíma samdægurs hjá hjúkrunarfræðingi eða lækni á HVest. Með þessu viljum við halda uppi góðu þjónustustigi og tryggja rétta þjónustu á réttum stað á réttum tíma.
ATH neyðarsíminn er áfram 112 og er fólki bent á að hringja í það númer ef þörf krefur.
Athugið – vegna eftirfarandi erinda skal leita beint til heilsugæslu HVest 450-4500
- Lyfjaendurnýjun
- Niðurstöður úr rannsóknum
- Almennir tímar og símatímar hjá læknum
- Vottorð og tilvísanir
Til að styðja sem best við þessa breytingu verður símsvörun á HVest samræmd og breytt þannig að símsvarinn mun bjóða upp á val fyrir bráð erindi og ráðgjöf vegna veikinda sem gefur viðkomandi samband við 1700.
Hægt er að komast á netspjall Heilsuveru sem birtist neðst í hægra horni á vefsíðunni heilsuvera.is