Við stofnunina eru tvö teymi sem sinna geðheilbrigði; geðheilsuteymi fyrir 18 ára og eldri, og barna- og unglingageðteymi.
Geðheilsuteymi
Geðheilsuteymi Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða hefur verið virkt frá 1. apríl 2020 og er staðsett á þriðju hæð Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða á Ísafirði.
Þjónusta teymisins er fyrir einstaklinga 18 ára og eldri sem glíma við andlega vanlíðan og/eða eru greindir með geðsjúkdóm og þurfa á þverfaglegri aðstoð ásamt þéttri eftirfylgd að halda. Einstaklingur þarf að vera með greinda geðröskun, búa við andlega vanlíðan eða ástand sem skerðir möguleika hans til lífsgæða, tilfinningalegra og/eða félagslegra samskipta, þátttöku í námi eða starfi, eða virkni í samfélaginu að öðru leyti.
Þjónusta Geðheilsuteymis HVest byggir á valdeflingu og batahugmyndafræði, sem felst í að styðja þjónustunotanda í sínu persónulega bataferli.
Markmið og tilgangur eru meðal annars:
- Að stuðla að og viðhalda bata
- Að tryggja einstaklingsmiðaða þjónustu
- Að tryggja samfellu og samþættingu í meðferð
- Að efla sálrænt og félagslegt heilbrigði einstaklingsins og fjölskyldu hans
- Að hvetja til sjálfshjálpar og sjálfsvirðingar
- Að styðja einstaklinginn í að lifa innihaldsríku lífi
- Að fækka endurinnlögnum og styrkja aðlögunarhæfni eftir útskrift af sjúkrahúsum
Í boði er:
- Einstaklingsmiðuð samtalsmeðferð
- Stuðningur til að auka félagslega virkni og endurheimta félagsleg hlutverk
- Regluleg fræðsla varðandi ýmis geðræn einkenni, grunnþarfir einstaklings og áhrif áfalla svo dæmi séu tekin
- Hópmeðferð í Hugrænni atferlismeðferð
- Fræðsla og stuðningur til einstaklingsins og fjölskyldu hans
- Mat á andlegu og líkamlegu ástandi, búsetu og þjónustuþörf
- Mat á lyfjameðferð
- Ráðleggingar hvar hægt sé að fá frekari stuðning og fræðslu
Starfsfólk og hlutverk geðheilsuteymisins
Geðheilsuteymi HVest er þverfaglegt teymi en í því starfa:
-Thelma Björk, teymisstjóri/félagsráðgjafi MA(100%)
-Aron Haukur, yfirsálfræðingur (100%)
-Hugrún, áfengis- og vímuefnaráðgjafi (100%),
-Eva Rós, iðjuþjálfi (100%),
-Sandra Borg, lismeðferðarfræðingur (50%) og
-Georg, læknir með grunn í geðlækningum (25%)
Þar að auki er áhersla almennt lögð á hvatningu hvað virkni og hreyfingu varðar og hefur Unnur hreyfistjóri HVest komið að málum skjólstæðingu teymisins í þeim tilgangi.
Geðheilsuteymið er sveigjanlegt á þann hátt að það er með einstaklingsbundna málastjórn en deilir ábyrgð fyrir þann notendahóp sem er í mestri þjónustuþörf.
Þjónustan fer fram með viðtölum á starfsstöðvum Geðheilsuteymisins eða fjarfundarbúnaði eftir því hvað henta þykir hverju sinni. Teymið sinnir öllum landsfjórðungnum og er með reglulega viðveru á Patreksfirði. Fjöldi viðtala er einstaklingsbundinn, fer eftir líðan og ástandi þjónustunotandans, hvaða þætti á að vinna með í meðferð, en er jafnframt háður svigrúmi hjá starfsfólki teymisins. Þjónustan er tímabundin en miðað er við að hámarki 12 mánuði.
Eftir því sem við á er í boði að vísa skjólstæðingum teymisins til ákveðinna teyma innan Landspítala. Um samstarfsverkefni er að ræða með þann tilgang að auka aðgengi landsbyggðarinnar að sérhæfðri þjónustu Landspítala en meðferð fer fram í gegnum fjarbúnað sem staðsettur er á HVest. Teymin sem um ræði eru:
- Þunglyndis- og kvíðateymi (ÞOK)
- Átröskunarteymi
- Áfallateymi
- Geðhvarfateymi
- Transteymi
Geðheilsuteymi HVest er ekki ætlað að sinna bráðatilfellum en leitast verður við að mæta þörfum nýrra þjónustunotanda eins fljótt og auðið er. Sé um bráðatilfelli að ræða skal ávallt leita til bráðamóttöku geðsviðs Landspítalans.
Þá er vert að taka fram að Geðheilsteymið er ekki greiningarteymi og sé þjónustunotandinn eingöngu í þörf fyrir lyfjameðferð vegna t.d ADHD er bent á ADHD teymi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Teymið hvetur fagfólk til að senda fyrirspurnir til teymisins þar sem eitt af hlutverkum teymisins er að vera ráðgefandi við annað fagfólk. Fyrirspurnir má senda á thelma@hvest.is
Verð fyrir þjónustu geðheilsuteymis
Þjónusta geðheilsuteymis er skjólstæðingum að kostnaðarlausu en það er liður í að tryggja að allir geti nýtt sér úrræðið.
Þjónusta á sunnanverðum Vestfjörðum
Geðheilsuteymi heilbrigðisstofnunarinnar þjónar öllum íbúum Vestfjarða og er því regluleg viðvera á Patreksfirði auk þess sem fjarviðtöl eru í boði þess á milli.
Hvernig er sótt um þjónustu?
Tekið er við tilvísunum frá fagfólki í heilbrigðis- og velferðarþjónustu.
Heilbrigðisstarfsfólk sendir tilvísun rafrænt í gegnum Sögu.
Annað fagfólk notar þetta eyðublað: Tilvísun til geðheilsuteymis Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða.
Mikilvægt er að tilvísun sé vel útfyllt svo hægt sé að taka afstöðu hennar. Eyðublaðið er fyllt út rafrænt, prentað út og sent í ábyrgðarpósti til Geðheilsuteymis Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, Torfnesi, 400 Ísafjörður.
Ef upp koma spurningar eða ef frekari upplýsinga er óskað má hafa samband við Thelmu Björk verkefnastjóra geðheilsuteymis í síma 862 7424 eða á netfangið thelma@hvest.is.
Fjarheilbrigðislausnir henta vel í mörgum tilvikum.
Barna- og unglingageðteymi
Barna- og unglingageðteymið þjónustar börn og fjölskyldur í vanda, s.s. tilfinningavanda, félaglegum vanda, þroskafrávikum og/eða hegðunarerfiðleikum. Teymisstjóri er Helena Hrund Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
Fundir hjá teyminu eru á fjögurra vikna fresti en þá sitja heilsugæsla, skóli, barnavernd og félagsþjónusta. Teyminu er ætlað að setja fram áætlun sem felur í sér meðferð, stuðning eða önnur úrræði til að samhæfa þjónustu og aðgerðir milli stofnana. Samráðsfundir barna- og unglingageðteymis Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og Barna- og unglingageðdeildar Landspítala eru einu sinni í mánuði með geðlækni og félagsráðgjafa auk þess sem haft er samband við geðlækna og hjúkrunarfræðinga þar eftir þörfum.
Tilvísun til teymisins
Heilsugæsla, félagsþjónusta, barnavernd og skóli geta sent tilvísun til teymisins. Tilvísanir skulu berast teymisstjóra. Foreldrar geta haft samband við heilsugæslu ef áhyggjur vakna vegna barna.
Sálfræðiþjónusta barna
Foreldrar sem óska eftir sálfræðiþjónustu fyrir börn geta leitað til heilsugæslunnar, læknis eða hjúkrunarfræðings, sem vísar málinu áfram.
Helena Hrund Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur, sér um tilvísanir og bókanir.
Barn fær úthlutaða 5–10 tíma hjá sálfræðingi og er staðan svo endurmetin af sálfræðingi, teymisstjóra barna- og unglingageðteymis í samráði við foreldra.
Ávallt er velkomið að hafa samband við teymisstjóra barna- og unglingageðteymis á netfangið helena@hvest.is eða hringja á heilsugæsluna í síma
450 4500 og skilja eftir skilaboð.
Uppfært 10. júní 2024 (HEP)