Vegna eldsumbrotanna í Eyjafjallajökli hefur landlæknisembættið sett inn upplýsingar og leiðbeiningar um varnir gegn gosöskunni. Þær eru eftirfarandi:
Bráð áhrif gosösku á heilsufar
Um þessar mundir berst mikil aska frá eldgosi í Eyjafjallajökli. Askan er samsett úr fínum ögnum og stærri ögnum. Vindátt og aðrar aðstæður ráða því hvar askan fellur. Efnagreining á öskunni hefur ekki borist ennþá en vitað er að aska úr eldstöðvum þaðan geta innhalda mikið af flúor, sem getur haft bæði bráð- og langvinn eituráhrif á grasbítandi dýr. Gosaska getur einnig haft áhrif á fólk en helstu einkenni eru frá:Öndunarfærum:
- Nefrennsli og erting í nefi
- Særindi í hálsi og hósti
- Fólk sem þjáist af lungnasjúkdómum, t.d. astma, getur fengið berkjubólgur sem varir í marga daga og lýsir sér í hósta, uppgangi og öndunarerfiðleikum
Gosaska getur ert augu einkum ef augnlinsur eru notaðar. Helstu einkenni eru:
- Tilfinning um aðskotahlut
- Augnsærindi, kláði, blóðhlaupin augu
- Útferð og tárarennsli
- Skrámur á sjónhimnu
- Bráð augnbólga, ljósfælni
Ráðleggingar til fólks þar sem öskufalls gætir:
- Nota öndunarfæragrímur utanhúss. Æskilegt að nota hlífðarföt.
- Séu öndunarfæragrímur ekki tiltækar má nota vasaklút eða annan klæðnað sem heldur stærri ögnum frá
- Ráðlagt að nota hlífðargleraugu
- Börn og fullorðnir með öndunarfærasjúkdóma skyldi halda sig innanhúss
Sóttvarnalæknir
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra
Höf.:SÞG