Starfseining: Heilsugæsla Suðursv., 450 Patreksfjörður
Umsóknarfrestur: frá 07.02.2025 til 24.02.2025.
Starfshlutfall: 80-100%
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Patreksfirði óskar eftir að ráða fólk í sumarafleysingar. Um er að ræða ýmisskonar störf s.s. afleysingu í móttöku, aðstoð í eldhúsi, starfsfólk í aðhlynningu, sjúkraliða í heimahjúkrun og hjúkrunarfræðinga.
Við leitum eftir jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingum til að starfa á hinum ýmsu deildum og er ýmist unnið í dagvinnu eða á vöktum. Starfshlutfall er mismunandi og fer eftir störfum.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 270 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.
Verkefni
Verkefni og ábyrgð eru mismunandi eftir störfum.
Hæfnikröfur
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
- Starfsleyfi í þeim störfum sem það á við
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Almenn tölvukunnátta
Laun
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Tengiliður/ir
- Hanna Þóra Hauksdóttir (hanna.hauksdottir@hvest.is | 450 4500)