Starfseining: Ráðsmaður, 400 Ísafjörður
Umsóknarfrestur: frá 08.04.2025 til 30.04.2025.
Starfshlutfall: 100%
Við leitum að framsýnum, jákvæðum og drífandi einstaklingi í starf umsjónarmanns eigna við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði. Leitað er að einstaklingi með þekkingu og góða reynslu af sambærilegu starfi. Umsjónarmaður eigna heyrir undir framvæmdastjóra fjármála og rekstrar.
Á stofnuninni er lögð er áhersla á fagleg vinnubrögð, umbætur í rekstri og ánægju starfsfólks. Hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 270 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef stofnunarinnar (www.hvest.is).
Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs.
Verkefni
- Umsjón með eignum stofnunarinnar s.s. fasteignum, íbúðum á vegum stofnunarinnar, bifreiðum, tækjum og öðrum búnaði.
- Umsjón með almennri umhirðu eigna og umhverfis í kringum þær.
- Smærri lagfæringar og viðhald.
- Upplýsingagjöf og yfirsýn yfir viðhaldsþörf.
- Umsjón með sorphirðu innanhús og förgun.
- Vöru- og póstflutningar til og frá HVest ásamt flutningum innanhúss.
- Ábyrgð á eigin eldvörnum s.s rýmingaráætlun og almennum öryggismálum.
Hæfnikröfur
- Iðnmenntun í tengdum greinum eða reynsla af sambærilegu starfi
- Öryggisvitund og áhugi fyrir umbótarstarfi
- Góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
- Reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
- Áreiðanleiki, frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
- Áhugi á þróun og uppbyggingu Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Almenn tölvukunnátta
Laun
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Tengiliður/ir
- Elísabet Samúelsdóttir (elisabet.samuelsdottir@hvest.is | 4504500)