Starfseining: Heilsugæsla Norðursv., 400 Ísafjörður Umsóknarfrestur: frá 20.10.2026 til 13.11.2026. Starfshlutfall: 25-50%

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða sérfræðing í geðlækningum. Um er að ræða 25% – 50%  starf á spennandi vettvangi sem er bæði ábyrgðamikið og krefjandi. 

Unnið er í nánu samstarfi við þverfaglegt geðheilsuteymi. Jafnframt felst í starfinu þátttaka í kennslu annarra heilbrigðisstétta og handleiðslu sérnámslækna, með sveigjanlegu starfshlutfalli (25-50%) með möguleika á staðvinnu og fjarvinnu.

Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 270 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef stofnunarinnar (www.hvest.is).

Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs og aðstoð við öflun húsnæðis auk flutningsstyrks.

 

Verkefni

  • Mat og greining á vanda skjólstæðinga
  • Þjónusta við skjólstæðinga á norðan- og sunnanverðum Vestfjörðum. 
  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu með sálfræðingum, félagsráðgjöfum og læknum í geðheilsuteymi HVest
  • Þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta, handleiðsla sérnámslækna í heimilislækningum.  
  • Vinnuhlutfall 25-50%. Bæði vinnulotur á staðnum og fjarvinna. 

Hæfnikröfur

  • Íslenskt lækningaleyfi og sérfræðiréttindi í geðlækningum
  • Áhugi á að veita vandaða og gagnreynda meðferð
  • Áhugi á þróun og sérhæfingu í starfi og sveigjanleiki til að tileinka sér nýjungar
  • Fagleg þekking, reynsla og hæfni á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragð.

Laun

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Tengiliður/ir

Sækja um

Smelltu hér til að sækja um starfið