Starfseining: Heilsugæsla Norðursv., 400 Ísafjörður Umsóknarfrestur: frá 09.06.2026 til 26.06.2026. Starfshlutfall: 100%

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða auglýsir eftir sálfræðingi í geðheilsuteymi stofnunarinnar. 

Starfinu er skipt á milli geðheilsuteymis stofnunarinnar og að sinna stuðningi, ráðgjöf og faglegri handleiðslu fyrir starfsfólk auk aðkomu að fræðslu og öðrum verkefnum. 

Starfið er án staðsetingar en æskilegt er að hafa reglulega viðveru á Ísafirði. T.d. ein vika á 4-6 vikna fresti eða eftir samkomulagi. 

Unnið er að því að geðheilbrigðisþjónusta verði í boði í öllu umdæmi stofnunarinnar, meðal annars með fjarheilbrigðisþjónustu og kemur til greina að sálfræðingur vinni að hluta eða öllu til í fjarvinnu.
 
Ef þú vilt vinna í öflugu teymi sem leggur áherslu á samvinnu, fagmennsku og metnað í starfi, er þetta einstakt tækifæri

Verkefni

  • Þjónusta við skjólstæðinga Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða í gegnum fjarheilbrigðisþjónustu og/eða á staðnum.
  • Samstarf við aðrar fagstéttir heilsugæslunnar og geðheilbrigðisþjónustu á svæðinu.
  • Stuðningur og ráðgjöf við starfsfólk.
  • Þátttaka í frekari innleiðingu á fjarheilbrigðisþjónustu.
  • Þátttaka í uppbyggingu geðheilsuteymis.
  • Handleiðsla í boði

Hæfnikröfur

  • Klínískt nám í sálfræði og starfsleyfi frá Embætti landlæknis
  • Þekking og reynsla á gagnreyndum aðferðum
  • Reynsla af greiningu og meðferð fullorðinna með geðrænan vanda
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Jákvæðni og frumkvæði í starfi
  • Áhugi, geta og faglegur metnaður til að starfa bæði sjálfstætt og í teymi
  • Góð almenn tölvukunnáttu
  • Íslenskukunnátta er skilyrði

Laun

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.

Tengiliður/ir

Sækja um

Smelltu hér til að sækja um starfið