Starfseining: Sími og upplýsingar, 400 Ísafjörður

Umsóknarfrestur: frá 03.07.2024 til 07.08.2024.

Starfshlutfall: -100%


Heilbrigðisstofnun Vestfjarða leitar að þjónustuliprum, jákvæðum og sjálfstæðum einstakling til starfa í móttökunni á Ísafirði. Um er að ræða 100% starf eða eftir nánara samkomulagi.

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 300 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum. 

Verkefni

Helstu verkefni móttökuritara eru móttaka viðskiptavina, tímabókanir, símsvörun, upplýsingagjöf, skráning í sjúkraskráningarkerfið Saga, móttaka greiðslu, uppgjör í lok dags, almenn skrifstofustörf og önnur tilfallandi verkefni í samráði við stjórnanda

Móttaka og símsvörun er opin á milli 8:00 til 15:00 en stofnunin hefur innleitt betri vinnutíma með fullri vinnutímastyttingu.

Megin starfsstöð er á Ísafirði en móttökuritarar veita þjónustu fyrir alla stofnunina í gegnum síma, fjartækni, tölvupóst, vef- og samfélagsmiðla. Þjónusta er einnig á heilsugæsluseljum á norðursvæði (útstöðvar).

 

Hæfnikröfur

  • Jákvætt viðmót, lipurð í samskiptum og fagleg framkoma
  • Stúdentspróf og/eða menntun í heilbrigðisgreinum kostur
  • Skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
  • Hæfni og geta til að starfa í teymi
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð íslensku og enskukunnátta áskilin
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Reynsla af móttöku- eða þjónustustörfum æskileg

Laun

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Tengiliður/ir

Sækja um

Smelltu hér til að sækja um starfið