Starfseining: Heilsugæsla Norðursv., 400 Ísafjörður

Umsóknarfrestur: frá 14.02.2025 til 10.03.2025.

Starfshlutfall: 80-100%


Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða tvo hjúkrunarfræðinga í sumarafleysingu á heilsugæslu stofnunarinnar á Ísafirði. Um er að ræða 80 – 100% starf. Boðið er upp á fjölbreytt starf í örvandi starfsumhverfi og góðum starfsanda. 

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 270 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum.  Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.

Ísafjarðarbær er paradís útivistarfólks og skiptir þá litlu í hvaða byggðarkjarna eða sveit fólk kemur sér fyrir. Óvíða ef nokkurs staðar er jafn stutt að fara úr iðandi mannlífi yfir í ósnortna náttúru og möguleikar til útivistar eru óteljandi, hvort sem er að sumri eða vetri.

Verkefni

Starfið felur í sér verkefni við heilsuvernd og heilsugæslu á heilsugæslustöðinni á Ísafirði og í heilsugæsluselum á norðanverðum Vestfjörðum.

Hæfnikröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Sérnám í heilsugæsluhjúkrun er kostur og /eða reynsla af vinnu á heilsugæslu
  • Sjálfstæði og metnaður í starfi
  • Íslenskukunnátta áskilin
  • Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Ökuréttindi eru nauðsynleg

Laun

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Tengiliður/ir

Sækja um

Smelltu hér til að sækja um starfið