Starfseining: Röntgen, 400 Ísafjörður Umsóknarfrestur: frá 17.11.2026 til 30.11.2026. Starfshlutfall: 80-100%

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða aðstoðarmanneskju í tímabundið starf á röntgendeild og slysadeild stofnunarinnar á Ísafirði. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og verið fram í maí 2027. Starfshlutfall er 80% – 100% eða skv. samkomulagi og starfið er unnið í dagvinnu.

Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 270 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.

Verkefni

Aðstoð við starfsfólk röntgen- og slysadeilda.

Hæfnikröfur

  • Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni 
  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi 
  • Góð reynsla og hæfileiki til að vinna í teymi

Laun

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Verkalýðsfélag Vestfirðinga hafa gert.

Tengiliður/ir

Sækja um

Smelltu hér til að sækja um starfið