Starfseining: Hjúkrunardeild Bolungarvík, 415 Bolungarvík Umsóknarfrestur: frá 18.11.2026 til 07.12.2026. Starfshlutfall: 70-90%

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar að ráða kraftmikinn leiðtoga á hjúkrunarheimilið Berg í Bolungarvík. Um 70 til 90% starfshlutfall er að ræða með möguleika á bakvöktum á móti öðrum hjúkrunarfræðingum. 

Aðstoðardeildarstjóri ber ábyrgð á mönnun, stjórnun og skipulagningu á daglegri starfsemi deildarinnar, í samvinnu við deildarstjóra. 

Á Bergi eru 10 heimilismenn og einkennist starfsemin af góðum starfsanda, umhyggju og hlýju. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 250 manns starfa á sjúkra-, heilsugæslu- og hjúkrunarsviði. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.

Verkefni

  • Vinnur í nánu samstarfi við deildarstjóra. 
  • Sinnir almennum hjúkrunarstörfum og ber ábyrgð á þeim. 
  • Skipuleggur vinnuframlag og mönnun deildarinnar í samræmi við hugmyndafræði, stefnu og rekstur. 
  • Skipuleggur vinnuskýrslur og heldur utanum skráningar í Vinnustund.
  • Ber ábyrgð á gerð RAI mats á heimilisfólki, fylgist með niðurstöðum gæðastaðla og kemur með tillögur að úrbótum.

Hæfnikröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi 
  • Framhalds- eða sérmenntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Sjálfstæði í starfi 
  • Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum.

Laun

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Tengiliður/ir

Sækja um

Smelltu hér til að sækja um starfið